Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sendu bréf til sveitarfélagsins og komast nú saman í sund á kvöldin

Read Full Article →

Krakkar í sjöunda bekk á Húsavík voru orðnir hundleiðir á að vera vísað frá sundlaug bæjarins vegna misskilnings um leyfilegan útivistartíma. Þau tóku því málin í sínar hendur, sendu sveitarfélaginu erindi og geta nú spriklað í lauginni eftir klukkan átta á kvöldin. Starfsfólk laugarinnar virtist ekki með útivistartímann alveg á hreinu og meinaði þeim sem ekki voru búnir að eiga afmæli að fara í sund. Í bréfi til sveitarfélagsins vísuðu krakkarnir í gildandi lög. Þau ítrekuðu að það ætti að miða við fæðingarár, ekki afmælisdag, og óskuðu eftir rökstuðningi yrði beiðni þeirra hafnað. Það kom þó ekki til neinna frekar deilna. Sveitarfélagið brást hratt og vel við - og krakkarnir himinlifandi yfir að komast í kvöldsund.

Share this article