Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stytta opnunartímann eftir að krakkar fóru fram á að komast í kvöldsund

Read Full Article →

Krakkar á þrettánda aldursári fengu nýverið reglum sundlaugarinnar á Húsavík breytt til samræmis við reglur um útivistartíma og fögnuðu því dátt að komast öll saman í kvöldsund. Starfsfólk sundlaugarinnar hafði þá fyrir misskilning bannað þeim sem ekki höfðu átt afmæli, að vera í sundi eftir klukkan átta á kvöldin. Krakkarnir fá þó ekki að njóta þess lengi. Sveitarfélagið tilkynnti í gær að laugin yrði aðeins opin til korter yfir átta á kvöldin, en ekki níu eins og áður var. Börnin græða þá aðeins fimmtán mínútur - og líklega minna því almennt er smalað fyrr upp úr svo fólk hafi tíma til að klæða sig. Skerða opnun um rúman klukkutíma á dag - krakkarnir græða korter Miðað við auglýstan opnunartíma sundlaugarinnar er skorinn af rúmur klukkutími á dag, með breytingunni sem tekur gildi um mánaðamót. Laugin hefur verið opin frá klukkan 6.45 á virkum dögum en breyttur tími er 7.15. Laugin hefur svo verið opin til 21 á virkum dögum, en nú er skellt í lás 20.15. Á föstudögum gátu Húsvíkingar verið í sundi til klukkan 19, en framvegis verður opið til 17.45. Um helgar verður opið í rúma sex klukkutíma, frá 10-16.15. Sveitarfélagið greindi frá breytingunni á vefnum í gær. Sveitarfélagið neyðist til að hagræða þegar tekjur minnka Kristinn Jóhann Lund, formaður fjölskylduráðs í Norðurþingi, segir skýringuna einfaldlega að það þurfi að hagræða í rekstri sveitarfélagsins vegna tekjufalls - og vísar þá til lokunar kísilvers PCC á Bakka. Þau hafi reynt að skerða opnunartíma þannig að það valdi íbúum og starfsfólki sem minnstum óþægindum, en vona þó að hægt verði að endurskoða málið strax í haust.

Share this article