- What: A series of crimes occurred in central Reykjavik
- Impact: Several people were arrested for theft and assault
Fjölmenni var í miðborg Reykjavíkur í nótt og að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var skemmtanahald friðsamlegt. Lögreglukonur í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚV Peningakassa var stolið úr verslun í miðborginni og rúður brotnar í öðru húsi til að komast inn. Ekkert bendir til að nokkuð hafi verið tekið þaðan. Maður var handtekinn fyrir innbrot í heimahús miðsvæðis í borginni og tveir menn sem slógust í Hafnarfirði voru handteknir fyrir líkamsárás. Þar í bæ hlupu lögreglumenn uppi réttindalausan ökumann sem reyndi að flýja á sprettinum eftir að för hans var stöðvuð og í Neðra-Breiðholti var bílstjóri handtekinn grunaður um ölvunarvunar- og vímuefnaakstur. Hann var einnig réttindalaus.