Innlent | Morgunblaðið | 14.2.2026 | 17:30 Vandræðagangur bótafrumvarps Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra vildi ræða um allt annað en kjaragliðnun við blaðamann þegar rætt var við hann í gær. mbl.is/Eyþór Vandræðagangur ríkisstjórnarinnar með breytingu á lögum þar sem bætur almannatrygginga eru tengdar þróun launavísitölu ætlar engan enda að taka. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að ekki verði á hverju ári horft til 12 mánaða þróunar launavísitölu og vísitölu neysluverðs og sú hærri lögð til grundvallar við ákvörðun bóta, heldur verði miðað við grunnpunkt, þ.e. stöðu vísitalna í júní 2025. Það jafni út hinn tvöfalda lás launavísitölu og verðlags og komi í veg fyrir tvöfaldar hækkanir bótaþega á við launþega í verðbólguskotum. Ákvæði laganna eftir breytingu virðist þó stangast á við téða greinargerð. Í ákvæði laganna trompar verðlagsþróun þróun launavísitölu en í greinargerð ekki. Ákvæði laganna samkvæmt orðanna hljóðan tryggir þannig ekki að hinn tvöfaldi lás jafnist út. Sé miðað við vilja löggjafans eins og hann birtist í greinargerðinni frekar en ákvæðinu sjálfu er tengingin við verðlagsþróun í reynd tilgangslaus, enda hefur sagan sýnt að launavísitalan hækkar til lengri tíma hraðar en vísitala neysluverðs og því er afar ólíklegt að það reyni nokkuð á gólf verðlagsþróunar þegar fram líða stundir. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra ræddi við blaðamann um hið umdeilda frumvarp að loknum fundi ríkisstjórnar í gær. Hljóð og mynd fer ekki saman í laga ákvæði frumvarpsins og greinargerðinni. Þarf ekki að skýra aðferðina nánar í ákvæðinu sjálfu til að tryggja að hinn tvöfaldi lás jafnist út? „Það teljum við ekki þurfa. Við teljum að frumvarpið tryggi nákvæmlega það sem því er ætlað að tryggja, sem er að það verði ekki gliðnun á milli bóta og kjara á vinnumarkaði,“ segir Daði. Launavísitalan hækkar sögulega hraðar en vísitala neysluverðs. Er ekki tilgangslaust að miða við verðlagsþróun yfirhöfuð þegar fyrirséð er að það mun til lengri tíma vera fullkomlega áhrifalaust? „Þú ættir að taka umræðu við félagsmálaráðherra um það vegna þess að það snýst um aðra hluti en ég hef áhyggjur af. Mitt verkefni er að vera með sjálfbær ríkisfjármál. Ég sé ekki heimsendinn sem allir þessir spekingar virðast sjá þarna í stjórnarandstöðunni.“ Eltingaleikur við ráðherra Þú talar um gliðnun á milli bóta og launa. Þar er jafnan vísað til þróunar yfir þröngt tímabil sem er um margt óvenjulegt, þar kemur m.a. stytting vinnu vikunnar inn í, sem hækkar launavísitöluna án þess að um sé að ræða launahækkanir sem skila sér í vasa launþega. Hvernig getið þið byggt fullyrðingar um kjaragliðnun á vísitölu sem tekur miklu fleiri þætti inn en raunverulegar launahækkanir? „Vísitöluútreikningar eru alltaf snúnir og þú getur eflaust gert svona athugasemdir við allar vísitölur. Þetta var meiriháttar viðfangsefni hagfræðinga á sjöunda áratugnum og niðurstaðan varð sú að fullkomnar vísitölur eru ekki til og verða aldrei til.“ Það breytir ekki því að varla er hægt að byggja á henni til að fullyrða að hér hafi orðið kjaragliðnun? „Við þurfum að reikna þetta einhvern veginn og þetta er sú nálgun sem virkar skást.“ Gott og vel, byggjum mat á kjaragliðnun á launavísitölunni. Ef þú horfir yfir lengri tímabil, eins og þú gerðir sjálfur í minnisblaði til velferðarnefndar þingsins vegna frumvarpsins, kemur í ljós að ef bætur hefðu fylgt launavísitölu með þessum hætti frá 1997 í stað núgildandi aðferðar væru bótaþegar verr settir. Þetta telst varla kjaragliðnun? „Hvernig getum við þá spáð því að þetta muni setja ríkissjóð á hliðina? Ég skil að það eru alltaf áhyggjur uppi af liðum sem eru sjálfvirkir, sem þú getur ekki almennilega stjórnað, og við viljum auðvitað ekki að þeir séu mjög stórir í ríkisfjármálunum vegna þess að þeir draga úr svigrúmi ríkissjóðs til þess að bregðast við aðstæðum á hverjum tíma. Þessi liður er hins vegar ekkert einsdæmi. Það er fullt af liðum inni í fjárlögum sem við í sjálfu sér stýrum ekki og þeir snúa ekki bara að bótakerfum eða heilbrigðiskerfinu, þótt margir þeirra geri það.“ Þú svarar ekki spurningunni minni. „Jú, ég er að svara spurningunni. Ég skil þær almennu áhyggjur. Hins vegar standast þau gífuryrði sem hafa verið notuð um afleiðingar þessarar breytingar enga skoðun.“ Ég er ekki að spyrja um afleiðingar þessarar breytingar, ég er að spyrja um meinta kjaragliðnun. „Gamla viðmiðið byggir annars vegar á launaþróun og hins vegar á verðlagsþróun, er það skárra viðmið?“ Ég er ekki að spyrja hvort viðmiðið er skárra heldur um kjaragliðnunina. „Jú, aðalspurningin er hvort breytingin sé til bóta eða ekki. Er falinn í henni einhver dauðadómur yfir ríkisfjármálunum? Spurningin er: er hægt að fullyrða það? Já, hún er til bóta og nei, hún er ekki dauðadómur yfir ríkisfjármálunum. Ég kann vel að meta aðgangshörku blaðamanns núna, en ég þarf að fara á ráðherranefndarfund.“ Bíddu hægur. Þú hefur ekki enn svarað spurningunni minni. „Hvaða spurningu hef ég ekki svarað?“ Hvort hægt sé að fullyrða að það sé kjaragliðnun. Þið horfið á þröngt tímabil þar sem til dæmis áhrif styttingar vinnuviku eru inni í launavísitölunni og til lengri tíma litið hefðu bótaþegar verið verr settir ef launavísitölunni hefði verið fylgt. Er einhver kjaragliðnun? Er þetta ekki allt einhver vitleysa? „Ég lít ekki þannig á. Þetta snýst um túlkun á gögnum.“ Ákvæði tengingar bóta við launavísitölu „Greiðslur almannatrygginga [...] skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af þróun launavísitölu [...], þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag skv. vísitölu neysluverðs.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Ragnar áfram oddviti Nýliðarnir unnu botnliðið Vandræðagangur bótafrumvarps Stiven átti stórleik City áfram – Burnley niðurlagt Samferða þjóðinni til farsældar Endurskoða ber umferðarskipulag við Höfðabakka Fleira áhugavert Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Harður árekstur á Suðurlandsvegi Bústaðurinn brann til kaldra kola Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Legurými staðið til boða í mánuði Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Enginn veit hvað gerist næst Beið sárþjáður fram á morgun Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Fangaverðir liggja ekki undir grun 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð Ragnar áfram oddviti Nýliðarnir unnu botnliðið Vandræðagangur bótafrumvarps Stiven átti stórleik City áfram – Burnley niðurlagt Samferða þjóðinni til farsældar Endurskoða ber umferðarskipulag við Höfðabakka Fleira áhugavert Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Pílustaður ekki íþróttamannvirki Hvernig mun framtíð Evrópu og Bandaríkjanna líta út? Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Legurými staðið til boða í mánuði Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Enginn veit hvað gerist næst Beið sárþjáður fram á morgun Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Fangaverðir liggja ekki undir grun 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð