Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Svigrúm til að víkja frá launavísitölunni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 21.3.2026 | 13:00 Svigrúm til að víkja frá launavísitölunni „Laun geta ekki hækkað hraðar en framleiðnivöxtur yfir löng tímabil. Á endanum kemur að einhverjum sársaukamörkum,“ segir Daði. mbl.is/Eyþór Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Í umræðu um atkvæðagreiðslu í þinginu um frumvarp um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu, sem nú er orðið að lögum, komu fram ólíkar túlkanir frá stjórnarliðum á ákvæði laganna. Annars vegar túlkun Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra sem sagði að breytingin fæli í sér skilyrðislausa bindingu bóta við launavísitöluna, þar sem lagabreytingar þyrfti til að víkja frá henni, og hins vegar skýring Jóhanns Páls Jóhannssonar orkumálaráðherra sem sagði að viðmiðið væri hlutlægt en fjárveitingarvaldið ætti alltaf lokaorðið. Frétt af mbl.is Deildar meiningar um ný lög Í ljósi þessa túlkunarvanda þótti nærtækast að leita svara hjá fjárveitingarvaldinu sjálfu og bar blaðamaður túlkunina undir fjármálaráðherra sjálfan, Daða Má Kristófersson, að loknum fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Veitir ákvæðið svigrúm til að taka í taumana á árlegri bótahækkun, ef aðstæður eru metnar þannig eða ert þú algjörlega og skilyrðislaust bundinn af þróun launavísitölunnar, og eftir atvikum vísitölu neysluverðs? „Orðalagið „miðað við“ í ákvæðinu gefur okkur eitthvert svigrúm en ákvæðið hefur alltaf verið að einhverju leyti matskennt. Regla fjármálaráðuneytisins hefur verið að byggja matið inn í fjárlög á spám og spár eru mat. Það er aftur á móti ákveðinn grunnur sem kemur inn sem viðmið varðandi þróun sem er kannski stærsta breytingin. Leiðréttingar munu því koma en þær geta hliðrast í tíma. Það þýðir að báðir ráðherrarnir hafa nokkuð til síns máls.“ En Inga segir skýrt að það þurfi lagabreytingu til. Hvers vegna túlka hún og félagar hennar í Flokki fólksins ákvæðið á aðra leið en að því er virðist bæði fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar? Má líta svo á að þið hafið snúið á Flokk fólksins í þessu máli? „Ég held að það sé rétt að þú spyrjir ráðherra Flokks fólksins að þessu.“ Í óundirbúnum fyrirspurnum í þinginu á fimmtudaginn, þar sem óhætt er að segja að öll spjót hafi staðið á þér … „Meira að segja spjót forseta stóð á mér,“ skýtur Daði Már inn í og hlær, en þar vísar hann til skoplegs atviks þar sem hann vitnaði í einu svara sinna til Dwight Eisenhower, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á ensku. Forseti barði þá í bjölluna og skikkaði ráðherrann til þess að þýða ummælin á íslensku. „Plön eru gagnslaus, að plana er allt,“ sagði Daði þá hikandi og uppskar hlátrasköll þingheims fyrir vikið. Að því ógleymdu. Þú rifjaðir þar upp það sem fram kom í minnisblaði þínu frá því á síðasta ári að ef hækkun bóta hefði miðað við launavísitölu frá árinu 1997 í stað þess fyrirkomulags sem var, þá hefðu bótaþegar verið verr settir í dag. Í ljósi þessa vaknar sú spurning hvort þessi breyting sé þá til þess fallin að bæta kjör þessara hópa? „Aftur held ég að það sé mikilvægt að þú varpir þessari spurningu til ráðherra félags- og húsnæðismála, Ragnars Þórs Ingólfssonar.“ Talandi um félagsmál. Á dögunum vísaðir þú til verðbólgu sem félagslegs fyrirbæris, að vissu leyti. Getur þú skýrt þau ummæli nánar? „Seðlabankinn horfir ekki síður til verðbólguvæntinga en verðbólgumælinga. Verðbólguvæntingar eru einhvers konar svona samfélagslegt eða félagslegt fyrirbæri. Það eru til mjög vel rökstuddar kenningar um að það séu grundvallaratriði sem valda verðbólgu. Það geta verið ytri sjokk eins og olíuverðshækkanir, en það geta líka verið strúktúrvandamál eins og það sem við erum að eiga við, þar sem eftirspurnin er meiri en hagkerfið þolir,“ segir Daði. „Eins og seðlabankastjóri, sérstaklega þó Þórarinn G. Pétursson [varaseðlabankastjóri], fór yfir í sinni tölu þá hafa launahækkanir á Íslandi verið umfram það sem hagkerfið getur staðið undir. Laun geta ekki hækkað hraðar en framleiðnivöxtur um löng tímabil. Á endanum kemur að einhverjum sársaukamörkum. Þótt þessir undirliggjandi þættir séu orsökin, þá hafa þeir einnig áhrif á hvernig fólk telur að verðbólguþróun verði. Það stýrir heilmiklu um hegðun fólks, launafólks varðandi kröfur um launahækkanir, fyrirtækja um verðákvarðanir, fjárfesta um vilja til fjárfestinga, um kröfur til ávöxtunar og það er sá hluti sem ég er að vísa til. Ég er ekki að tala um eitthvert DNA Íslendinga eða neitt slíkt, heldur bara þennan almenna sannleik, að ef þú býst við að eitthvað muni gerast, þá hefur það áhrif á hegðun.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vildu drekka kaffi með Gimpinu Gerðu misheppnaða árás á Diego Garcia-herstöðina Brighton - Liverpool, staðan er 1:0 United sendir kvörtun til Dómarasamtakanna Svigrúm til að víkja frá launavísitölunni Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fólk er eðlilega í áfalli“ „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Holtavörðuheiði enn lokuð Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Gestir kvarta undan ólykt Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Vill gera glæpamönnum lífið leitt Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Næsta lægð nálgast síðdegis Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Búið að opna heiðina Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Vildu drekka kaffi með Gimpinu Gerðu misheppnaða árás á Diego Garcia-herstöðina Brighton - Liverpool, staðan er 1:0 United sendir kvörtun til Dómarasamtakanna Svigrúm til að víkja frá launavísitölunni Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill gera glæpamönnum lífið leitt Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Gestir kvarta undan ólykt Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Vill gera glæpamönnum lífið leitt Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Næsta lægð nálgast síðdegis Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Búið að opna heiðina Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum

Share this article