- What: A person claims to have deleted a video after police threats
- Impact: Incident involving a man who allegedly set himself on fire
Innlent | mbl | 18.5.2026 | 12:29 Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Ísak segist enn vera að jafna sig. mbl.is/Eggert Jóhannesson Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Sjónarvotti sem varð vitni að hræðilegu atviki í gamla kirkjugarðinum í Reykjanesbæ í morgun, þar sem einstaklingur í andlegu ójafnvægi er sagður hafa kveikt í sér, var gert að eyða myndbandi af atburðarásinni af lögreglu gegn hótunum að hans sögn. Hann segist hafa í fyrstu talið að rafvarnarvopn lögreglu hafi leitt til þess að eldur kviknaði í manninum og sá ekki sjálfur að maðurinn hafi borið kveikjara líkt og fram kom í tilkynningu lögreglu. Hann útilokar þó ekki að það sé rétt þar sem hann stóð nokkuð fjarri atburðarásinni eða um 30 metra á að giska. Frétt af mbl.is Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Eingöngu á nærbuxunum Ísak Berglindarson var á göngu fram hjá gamla kirkjugarðinum þegar hann varð vitni að atvikinu. Segir hann fjóra til fimm lögreglumenn hafa veitt manninum eftirför og að maðurinn hafi verið á nærbuxunum einum klæða. „Þetta var rosalegt og ég er enn að jafna mig,“ segir Ísak. „Ég var að labba fram hjá gamla kirkjugarðinum í Keflavík þegar ég sé lögguna og tek eftir þessum manni. Ég tók upp símann og fór að taka upp,“ segir Ísak. Einhvers konar grillvökvi Hann segir að maðurinn hafi virst óvopnaður en hann hafi ekki vitað hvað gekk á fram að því að maðurinn fór inn í kirkjugarðinn. „Ég sá lögreglu hóta honum því að beita rafbyssu. Hann fór upp með hendur í fyrstu en svo fór hann að hlaupa í burtu og virtist hella yfir sig einhvers konar grillvökva úr svörtum brúsa. Þá skaut lögregla hann með rafbyssu sem virtist ekki virka, svo skutu þeir hann aftur og þá kviknaði bara í manninum,“ segir Ísak. Hann segir að í framhaldinu hafi maðurinn hlaupið um öskrandi á meðan eldurinn breiddist um líkama hans. „Lögreglumennirnir stóðu hjá og gerðu ekkert. Maðurinn fór að lokum að velta sér upp úr jörðinni og ég öskraði á lögregluna: „Ekki standa þarna bara eins og gungur, hjálpiði manninum,“ segir Ísak. Hann segir að hvort sem maðurinn hafi borið kveikjara eða ekki hafi það komið honum á óvart að lögregla hafi beitt rafbyssu eftir að hann hellti yfir sig eldsneytinu. Náði að slökkva eldinn sjálfur Að sögn hans náði maðurinn sjálfur að slökkva eldinn með því að velta sér. Í framhaldinu var hann handtekinn. „Svo kom löggan til mín og fór að hóta mér ef ég myndi ekki eyða myndskeiðinu. Ég ákvað bara að hlýða. Ég veit alveg að ég hefði getað komist upp með að segja nei og hálfsé eftir því núna að hafa hlýtt en ég bara brást svona við,“ segir Ísak. Hann segir lögreglu hafa séð til þess að hann eyddi myndskeiðinu úr símanum og einnig úr möppu sem inniheldur nýlega eydd myndskeið. Í tilkynningu lögreglu segir að maðurinn sé með brunasár víðs vegar um líkamann og að hann sé á spítala. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lætur Conte af störfum? Hafa framleitt 5.400 tonn af mjöli á vertíðinni Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Lík fjögurra kafara fundin Sú markahæsta barnshafandi Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Hantaveiruskipið komið til Rotterdam Þrír grunaðir um árás á eldri mann Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Miðflokkurinn fyrsti valkostur Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Lætur Conte af störfum? Hafa framleitt 5.400 tonn af mjöli á vertíðinni Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Lík fjögurra kafara fundin Sú markahæsta barnshafandi Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveiruskipið komið til Rotterdam Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu Einar boðaður á fund: „Þetta fer nú rólega af stað“ Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Miðflokkurinn fyrsti valkostur Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi