Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Yfir 45 drepnir í árásum vígamanna á þrjú þorp

  • What: Over 45 people were killed in attacks on three villages in Niger State, Nigeria.
  • Impact: Residents were either shot or had their throats cut by militants, and many homes were burned.
Read Full Article →

Yfir 45 voru drepnir í árásum á þrjú þorp í Niger-héraði í Mið-Nígeríu í gær. Fólkið var ýmist skotið til bana eða skorið á háls af vígamönnum sem réðust inn í þorpin á yfir fjörutíu mótorhjólum, hvert þeirra með tveimur til þremur mönnum á. Flest heimili voru brennd til grunna, margra er saknað, og allavega fjórum konum var rænt af vígamönnunum. Mannfall er því talið geta verið enn meira. Árásir sem þessar og mannrán eru tíð í Nígeríu. Margir vígahópar og íslamistar halda til í Kainji-skóginum sem er á mörkum Níger- og Kwara-héraðanna. Fyrr í þessum mánuði myrtu íslamistar yfir 160 manns í árás á þorpið Woro í Kwara-héraði. Stjórnvöld í landinu hafa verið undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn vegna óstöðugleika í landinu. Því óskaði ríkisstjórnin nýverið eftir aðstoð frá Bandaríkjaher til að þjálfa nígeríska herinn og um 200 bandarískir hermenn verða sendir til Nígeríu á næstu vikum til að þjálfa nígeríska hermenn til að berjast gegn vígasveitum íslamista.

Share this article