- What: The Nigerian Ministry of Defense announced that approximately 100 US soldiers are being deployed to Nigeria.
- Impact: The US special forces will provide advisory and training support to the Nigerian army, but will not directly participate in combat operations.
Nígeríska varnamálaráðuneytið tilkynnti í gær að um 100 bandarískir hermenn séu á leið til landsins. Bandarísku hermennirnir eru sérsveitarmenn sem munu einungis koma að ráðgjöf og þjálfun fyrir nígeríska herinn. Samkvæmt nígerískum yfirvöldum munu þeir ekki taka beinan þátt í aðgerðum með nígeríska hernum í aðgerðum hersins gegn vígahópum og íslamistum í landinu. Nígería hefur verið undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn vegna óstöðugleika í landinu og óskaði nígeríska ríkisstjórnin eftir aðstoð frá Bandaríkjaher til að þjálfa herinn. Árásir á almenna borgara og mannrán eru tíð í Nígeríu.