Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Diaz-Canel varar Bandaríkin við alvarlegum afleiðingum hernaðaríhlutunar

  • What: Cuban leader warns of serious consequences from US military actions
  • Impact: Political tensions between Cuba and the US are escalating
Read Full Article →

Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti varar bandarísk stjórnvöld við því að allar atlögur að eyríkinu komi af stað blóðbaði með óhugnanlegum afleiðingum. Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti flytur ávarp 16. apríl síðastliðinn.EPA / Ernesto Mastrascusa Forsetinn sagði þetta í færslu á samfélagsmiðlinum X og áréttaði jafnframt að Bandaríkjunum eða hvaða öðru ríki sem er stafaði engin hætta af Kúbu. Diaz-Canel birti færsluna í kjölfar þess að vefritið Axios sagði Rússa og Írana hafa sent kúbverskum yfirvöldum á fjórða hundrað árásardróna og að þau hygðust beita vopnunum gegn bandarískum skotmörkum. Þar voru sérstaklega nefnd herstöð Bandaríkjanna við Guantanamoflóa, bandarísk herskip og jafnvel Key West á Flórída.

Share this article