- What: Standard Chartered plans to reduce staff by 15% by 2030 due to increased use of automation
- Impact: Affects 8,000 employees globally, primarily in international offices
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Fluttu minna út en áður og meira inn Brynjólfur Þór Guðmundsson Íslendingar fluttu inn vörur á síðasta ári fyrir nærri 500 milljörðum meira en þeir fluttu út. Heildarvöruútflutningur skilaði 932,1 milljarði króna í tekjur, einu prósenti minna en árið áður. Landsmenn greiddu 1.408,9 milljarða fyrir vörurnar sem þeir fluttu inn, 3,9 prósentum meira en árið áður. Aðkeyptu vörurnar kostuðu því 485,7 milljörðum meira en þær sem voru fluttar út. Fragtskip Eimskipa við bryggju í Sundahöfn. RÚV / Arnar Þórisson Fyrir 3 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Standard Chartered boðar niðurskurð vegna gervigreindar Breski bankinn Standard Chartered ætlar að fækka starfsmönnum um hátt í 8 þúsund til ársins 2030, sem er 15% fækkun. Ástæðan er áætlanir um aukna notkun gervigreindar í starfseminni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Spánn Sonur stofnanda Mango handtekinn vegna dauða hans Brynjólfur Þór Guðmundsson Spænska lögreglan greindi í dag frá því að hún hefði handtekið Jonathan Andic, son Isaks Andics sem stofnaði tískuverslanarisann Mango. Andic eldri lést í fjallgöngu í desember 2024. Sonur hans var þá einn með honum á ferð. Upphaflega var talið að Andic hefði látist af slysförum en seinna vaknaði grunur um að sonurinn hefði myrt föður sinn. Það var ekki síst vegna mótsagnakennds framburðar hans í skýrslutökum. Hann hafði upphaflega réttarstöðu vitnis en síðar sakbornings. Isak Andic ásamt fatahönnuðinum Wisharawish Akaransantisook. Safnmynd. EPA / TONI ALBIR Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitar funda í Norðurþingi – „Stundum hægt að vera sammála um að vera ósammála“ Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi á von á að hægt verði að mynda fjögurra flokka meirihluta takist oddvitum að finna flöt á hlutverkaskiptingu í sveitarstjórn. Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Samfylkingin og Óskalistinn funda í dag. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Ein stærstu vopnakaup Svía í 40 ár Sænska ríkisstjórnin ætlar að kaupa fjórar freigátur af frönskum vopnaframleiðanda. Forsætisráðherrann segir að loftvarnir landsins aukist til muna. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist Átti í nánum bréfaskriftum við organista páfans í 25 ár: „Við urðum miklu meira en vinir“ „Þetta samband þróaðist út í að verða sálarsamband,“ segir Jón Magni Ólafsson sem kynntist Fernando Germani organista sem ungur maður. Hann fékk einkatónleika í Dómkirkjunni og þeir héldu sambandi og skrifuðust á þar til Germani lést. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Óþægilega sterkir kraftar ýta undir verðbólgu Greiningardeildir spá því að Seðlabankinn hækki stýrivexti á morgun. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að sterkir kraftar úti í heimi ýti undir verðbólgu og vísar þar sérstaklega til hækkandi eldsneytisverðs. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hveragerðisbær Umferð stýrt vegna framkvæmda austan Hveragerðis Brynjólfur Þór Guðmundsson Framkvæmdum á um 900 metra kafla á hringveginum austan hringtorgs við Hveragerði verður haldið áfram í dag, milli níu að morgni og átta í kvöld. Umferð verður stýrt meðan á þessu stendur. Vegagerðin biður vegfarendur að sýna aðgát og virða merkingar. Framkvæmdirnar við Hólmsá, rétt fyrir utan Reykjavík, ollu talsverðum töfum í gær. Hveragerði. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Lýðstjórnarlýðveldið Kongó 131 dauðsfall rakið til ebólu Brynjólfur Þór Guðmundsson Stjórnvöld í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó áætla að 131 hafi látist af völdum ebólu af þeim 513 sem talið er að hafi smitast. Áður hafði verið greint frá því að 350 hefðu smitast og 91 látist. Talsmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar greindi AFP-fréttastofunni frá því í dag að stofnunin hygðist halda neyðarfund til að ræða um veikina. Fundurinn verður haldinn síðar í dag. Afríska sóttvarnastofnunin lýsti því í dag yfir að ebóla í Kongó og Úganda væri ógn við heilsufar í allri álfunni vegna hættunnar á því að hún breiddist enn frekar út. Hún sagðist vera í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina um að samhæfa viðbrögð og forvarnir. Líberískur hjúkrunarfræðingur sótthreinsar aðstöðu. EPA / AHMED JALLANZO Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rólegheitaveður með smá vætu Útlit er fyrir þokusúld eða dálitla rigningu en annars staðar verður hæglætisveður og bjart með köflum en skúrir á stöku stað. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Xi á að hafa sagt Trump að Pútín ætti eftir að iðrast innrásarinnar í Úkraínu Kínaforseti er sagður hafa tekið óvenjudjúpt í árinni á fundi með Bandaríkjaforseta með staðhæfingu um að Rússlandsforseti muni iðrast innrásarinnar í Úkraínu. Rússlandsforseti kemur til Kína í dag til fundar við forsetann og fleiri ráðamenn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Stöðvaður réttindalaus á negldum dekkjum með röng skráningarnúmer Markús Þ. Þórhallsson Lögregla að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV / Vignir Már Eiðsson Eignaspjöll í úthverfi eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ökumaður sem lögreglumenn stöðvuðu í miðborg Reykjavíkur reyndist réttindalaus auk þess sem undir bílnum voru nagladekk og hann á röngum skráningarnúmerum. Skýrsla var rituð um málið að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar. Nagladekkjanotkun leiddi til kæru á hendur öðrum ökumanni í miðborginni. Innbrotsþjófar voru handteknir þar um slóðir við iðju sína og stungið í fangaklefa. Þar gistu tveir í morgun. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Víðfeðmir gróðureldar geisa nærri Los Angeles Markús Þ. Þórhallsson Umfangsmiklir gróðureldar kviknuðu í gærmorgun nærri úthverfi í bandarísku borginni Los Angeles og breiddust hratt út. Fremur hlýtt, þurrt og hvasst er á svæðinu sem kyndir bálið. Hér má sjá afleiðingar gróðurelda í Kalíforníu í ágúst 2025. EPA / ALLISON DINNER Yfirvöld skipuðu þúsundum íbúa bæja og úthverfa borgarinnar að yfirgefa heimili sín eða búa sig undir flótta. Í gærkvöld hafði eldurinn breiðst yfir fimm og hálfs ferkílómetra svæði og eyðilagt eitt íbúðarhús. Það jafngildir stærð Kársnessins og miðbæjar Kópavogs. Engar tilkynningar hafa borist um manntjón. Borgarstjórinn Karen Bass sagði á blaðamannafundi ólíklegt að gróðureldarnir næðu til Los Angeles-borgar sjálfrar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Diaz-Canel varar Bandaríkin við alvarlegum afleiðingum hernaðaríhlutunar Markús Þ. Þórhallsson Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti varar bandarísk stjórnvöld við því að allar atlögur að eyríkinu komi af stað blóðbaði með óhugnanlegum afleiðingum. Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti flytur ávarp 16. apríl síðastliðinn. EPA / Ernesto Mastrascusa Forsetinn sagði þetta í færslu á samfélagsmiðlinum X og áréttaði jafnframt að Bandaríkjunum eða hvaða öðru ríki sem er stafaði engin hætta af Kúbu. Diaz-Canel birti færsluna í kjölfar þess að vefritið Axios sagði Rússa og Írana hafa sent kúbverskum yfirvöldum á fjórða hundrað árásardróna og að þau hygðust beita vopnunum gegn bandarískum skotmörkum. Þar voru sérstaklega nefnd herstöð Bandaríkjanna við Guantanamoflóa, bandarísk herskip og jafnvel Key West á Flórída. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Máli Musks gegn OpenAI vísað frá — vegna fyrningar Mál Elons Musk gegn bandaríska tæknifyrirtækinu OpenAI rann út í sandinn í gær þegar kviðdómur ákvað að beita fyrningarreglu og vísa því frá. Hann hafi beðið of lengi með málshöfðun. Krafa Musks var að fyrirtækið yrði óhagnaðardrifið. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Varnarmálanefnd þingsins ræðir mögulega ógn af drónaflugi Stjórnvöld víða hafa lýst áhyggjum af fjölþáttaógnum sem miða að því að veikja traust almennings og lama innviði. Drónaflug hefur verið álitið ein þeirra ógna og virtist steðja að Finnlandi fyrir helgi. Varnarmálanefnd þingsins fundar um málið í dag. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Orkumál Tímabundin heimild til kaupa á rússneskri olíu framlengd öðru sinni Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að framlengja á ný til þrjátíu daga sérstaka undanþágu frá banni við kaupum á rússneskri olíu. Hún nær aðeins til olíu um borð í skipum á siglingu og er ætlað að draga úr orkuskorti viðkvæmra ríkja. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Heilbrigðisyfirvöld hyggjast skima farþega við ebólu Bandarísk heilbrigðisyfirvöld telja litla hættu á að ebólufaraldur skjóti sér niður þarlendis. Þau hafa ákveðið að grípa til forvarna við landamærin, meðal annars með skimun og takmörkunum á komu erlends fólks frá svæðum þar sem faraldur geisar. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Vonast eftir góðum árangri af fundi forsetanna tveggja Rússlandsforseti heldur til fundar við Kínaforseta í dag, tæpri viku eftir að Bandaríkjaforseti kvaddi með virktum. Rússnesk stjórnvöld vonast til góðs árangurs af tveggja daga fundi leiðtoganna þar sem varnarmál og viðskipti verða meðal annars rædd. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi 47 aftökur í Bandaríkjunum í fyrra Bandaríkin eru meðal þeirra ríkja þar sem aftökur voru fleiri í fyrra en árið á undan. 47 manns voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í fyrra, þar af 19 í Flórída. 19. maí 2026 kl. 0:21ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump kveðst hafa hætt við stórfellda árás á Íran vegna vonar um friðarsamkomulag Bandaríkjaforseti segir leiðtoga bandalagsríkjanna við Persaflóa hafa hvatt hann til að hætta við að leggja til atlögu að Íran aftur. Unnið væri að samkomulagi um frið. Árás hefði verið í bígerð þar sem Íransstjórn hafnaði vopnahlésskilmálum hans. 18. maí 2026 kl. 23:24INNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Rjúpan nýtur góðs af lægð fálkans Fækkun fálka gæti orðið til þess að fjölgi í rjúpnastofninum. Árleg rjúputalning fór fram nýverið og virðist talsvert af fugli austan til. 18. maí 2026 kl. 22:59INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óljóst hvort og hvenær verði farið í framkvæmdir við Landeyjahöfn Innviðaráðherra vonast til að hægt verði að gera varnargarða við Landeyjahöfn, til að