Sonja Lí Kristinsdóttir lenti á hliði og féll í dag en segir að það sé í góðu lagi með skrokkinn. „Seinni ferðin byrjaði ágætlega. Það var aðeins harðara færi núna. Það er skuggi efst uppi, sem var alveg krefjandi, en það gekk nokkuð vel. Ég var sein í nokkrum beygjum og var ekki alveg að finna ytra skíðið. Svo kom ég að kantinum þarna og flaug á hausinn. Ég veit ekki alveg hvað gerðist. Ég lenti eitthvað skringilega og missti tak.“ „Ég flækti mig ekki í. Ég rann hálfasnalega niður en það er allt í lagi með mig,“ bætti hún við. „Ég fer með góða tilfinningu út úr þessu. Þetta er lærdómsríkt og ég hef ekkert neikvætt um þessar ferðir að segja. Bara leiðinlegt að þetta endaði svona. Ég ætlaði að negla á þetta og sækja færri sekúndur í þessari ferð. En svona endar þetta,“ sagði hún að lokum.