„Þetta byrjaði rosa sterkt,“ sagði Sonja Lí Kristinsdóttir eftir fyrri ferðina í svigi á Vetrarólympíuleikunum sem hún náði ekki að klára. „Allavega brautin og ég náði alveg að fylgja henni úr startinu. Svo byrjuðu þetta að verða svona aðeins harðari beygjur.“ Sonja segir að færið hafi verið gott en sporin sem höfðu myndast létu skíðakonurnar hafa fyrir hlutunum. Þá hafi brautin verið sett þannig upp að hraðinn breyttist á köflum og hún hafi ekki gert nægilega vel þar. „Svo yfir næst síðasta kantinn þá krækti ég hreinlega skíðunum í stöngina.“ Þrátt fyrir vonbrigðin getur Sonja tekið heilmargt frá þessum Ólympíuleikum og reynslan mun hjálpa henni á næstu stórmótum. Og stefnir hún á næstu Vetrarólympíuleika? „Heldur betur.“ Nánar er rætt við Sonju Lí í spilaranum hér fyrir ofan.