Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sonja Lí útskýrir millinafnið sitt

Read Full Article →

Sonja er frá Akureyri og byrjaði að æfa skíði þegar hún var fimm ára. Hún kláraði grunnskólann þar áður en hún fór í menntaskóla í Noregi. „Kristinn Björnsson hefur alltaf verið þjálfarinn minn þar frá fyrsta bekk. Hann er rosa fínn. Hann er með mikla reynslu og kann allt. Það vita allir þar hver hann er.“ Sonja Lí segir að pabbi sinn sé helsta hvatning hennar til að byrja að stunda skíði. Hann er Kristinn Magnússon og keppti á Vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City í Bandaríkjunum árið 2002. Í viðtalinu útskýrir Sonja m.a. millinafnið sitt, Lí. „Ég á nafnið Lí frá frænku minni, systur mömmu, þetta kemur alla vega frá ömmu.“ Bein útsending frá stórsvigi kvenna hefst klukkan 08:50 í fyrramálið á RÚV 2. Þar verður Elín Elmarsdóttir Van Pelt einnig meðal keppenda.

Share this article