Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Stefna á að sækja 80 milljarða dala

  • What: SpaceX plans to go public
  • Impact: No direct impact on IT security
Read Full Article →

SpaceX, geimfyrirtæki Elon Musk, stefnir að því að skrá hlutabréf sín á Nasdaq þann 12. júní. Samkvæmt heimildum Wall Street Journal (WSJ) hyggst félagið sækja allt að 80 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 10.300 milljarða króna, sem yrði stærsta frumútboð sögunnar. Bréfin eiga að verða skráð undir auðkenninu „SPCX“. Upphaflega höfðu ráðgjafar félagsins gert ráð fyrir skráningu um 17. júní, en dagsetningunni hefur nú verið flýtt til 12. júní. Til þess að skráningin gangi eftir þarf SpaceX að birta opinber útboðsgögn í síðasta lagi um miðja næstu viku. Þar verða meðal annars birtir ársreikningar, sundurliðun rekstrareininga félagsins og upplýsingar um eignarhald. Aukin eftirspurn Skráningin kemur í kjölfar farsæls útboðs tæknifyrirtækisins Cerebras Systems, sem sótti 5,6 milljarða dala í síðustu viku. Bréf Cerebras, sem hannar sérhæfðan vélbúnað fyrir gervigreind, hækkuðu um 68% á fyrsta viðskiptadegi. Þykir það til marks um mikla eftirspurn fjárfesta eftir hlutabréfum í fyrirtækjum sem tengjast gervigreindarbyltingunni. Ekki liggur enn fyrir hvaða verðmiði verður settur á SpaceX í útboðinu. Heimildarmenn WSJ nefna virðismat á bilinu 1.500 til 1.750 milljarðar dala, en Bloomberg hefur nefnt verðmat upp á 2.000 milljarða dala. Ljóst er að margir munu hagnast verulega á skráningunni. Þar má nefna vogunarsjóðinn Darsana Capital Partners, sem fjárfesti fyrst í SpaceX árið 2019 þegar félagið var metið á um 30 milljarða dala. Eign sjóðsins í SpaceX nemur nú tæplega 60% af heildareignum hans í stýringu. Útboðið kemur sama tíma og fjárfestingaþörf SpaceX vex hratt. Bygging Terafab-verksmiðjunnar, sem SpaceX er að þróa í samstarfi við Tesla, kallar fjárfestingu upp á að lágmarki 55 milljarða dala. Terafab er risaverksmiðja fyrir framleiðslu gervigreindarflaga og hálfleiðara og er ráðgert að reisa hana í Texas. Að auki hefur Musk lýst yfir áformum um að skjóta á loft allt að einni milljón gervigreindargervihnatta (e. AI satellites) á sporbraut jarðar á komandi árum. Þá hyggst SpaceX byggja nýja sólarsellusmiðju í Texas auk skotpalla í Flórída. Heildartekjur SpaceX árið 2025 námu um 16 milljörðum dala. xAI sameinað SpaceX Hluti af aukinni fjárfestingaþörf SpaceX má rekja til kaupa félagsins á gervigreindarfyrirtækinu xAI í febrúar. xAI hefur þróað mállíkanið Grok, sem keppir við ChatGPT frá OpenAI og Claude frá Anthropic. Um var að ræða hlutabréfaviðskipti þar sem xAI var metið á um 250 milljarða dala. Um var að ræða hlutabréfaviðskipti þar sem xAI var metið á um 250 milljarða dala. Musk staðfesti í síðustu viku að xAI yrði leyst upp sem sjálfstætt félag og rekstur þess sameinaður SpaceX. Rekstur SpaceX skilar þegar verulegum tekjum. Á síðasta ári námu heildartekjurnar 16 milljörðum dala og var EBITDA 8 milljarðar. Fyrirtækið hefur m.a. hannað Falcon 9 og Falcon Heavy eldflaugarnar, sem flytja gervihnetti, farm og geimfara út í geim. Falcon 9 getur lent aftur eftir á jörðu eftir geimferð sem þýðir að kostnaður við geimferðir hefur lækkað. Ein stærsta tekjulind SpaceX er Starlink en það er net gervihnatta, sem veitir háðraðanettengingu víða um heim. SpaceX hefur einnig verulegar tekjur af samningum við bandarísk stjórnvöld sem tengjast geimferðum. SpaceX hefur líka aðrar tekjur. Má nefna áhugaverðan samning sem gerður var núna í byrjun maí við gervigreindarfyrirtækið Anthropic, sem er á bak við Claude. Sá samningur kveður á um að aðgang Anthropic að gagnaverinu Colossus 1, sem SpaceX/xAI byggði upp í Memphis í Tennessee til að þjálfa Grok. Anthropic getur eftir samninginn nýtt reiknigetu gagnaversins í sína þágu, til að þjálfa Claude. Upphæð samningsins hefur ekki verið gerð opinber. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article