Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Birta leiðréttingu að höfðu samráði við Nas­daq

Read Full Article →

Fjármálaráðuneytið hefur birt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, að höfðu samráði við Nasdaq verðbréfamiðstöð, þar sem áréttað er að hugmyndir um viðbótarskattheimtu sem gert er ráð fyrir í nýrri fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 séu „allar á hugmyndastigi og bíða útfærslu og samþykkis, þar með talið þinglegrar meðferðar“. Sérstaklega er þar vísað til áforma að leggja aukna skatta á fjármálafyrirtæki. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í viðtali við Morgunblaðið að ekki væri búið að ákveða um fjárhæð viðbótarskatttekna frá fjármálafyrirtækjum. Sjá einnig Boða hærri skatta á fjár­mála­fyrir­tæki Þórður Snær Júlíus­son, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sam­fylkingarinnar, sagði í að­sendri grein á Vísi sem birtist á laugar­daginn að horft sé til þess að hækkun banka­skattsins eigi að skila ríkis­sjóði um 6 milljarða króna í nýjar tekjur á næsta ári. Hann hafði degi áður á Kratanum, bloggsíðu þingflokks Samfylkingarinnar, haldið því sama fram. Daði Már sagði í téðu viðtali að líklega hafi Þórður Snær misskilið upplýsingar sem þingflokkarnir fengu um efni fjármálaáætlunarinnar. Fjármálaráðherra sagði málið óheppilegt. Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins segir að endanlegar tillögur um tekjuráðstafanir á árinu 2027 muni koma fram í frumvarpi til fjárlaga í haust. „Þær tillögur kunna síðan að breytast í þinglegri meðferð fjárlagafrumvarpsins. Ekki liggja fyrir samþykktar fjárhæðir viðbótartekna sem lagt verður til að aflað verði frá fyrirtækjum á fjármálamarkaði og ekki heldur leiðir til að afla þeirra. Samþykktarferli vegna þessara atriða er ekki heldur farið af stað.“ Eins og blaðamaður Morgunblaðsins benti á telst fjárhæð hækkunar skattsins til innherjaupplýsinga, enda lá engin fjárhæð fyrir í opinberum gögnum fjármálaáætlunar. Skatturinn hafi t.d. áhrif á arðgreiðslugetu fjármálafyrirtækjanna sem flest eru skráð á markað.

Share this article