Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óvissa um hvað er fólgið í hugsanlegu friðarsamkomulagi

  • What: Uncertainty surrounds a potential peace agreement between Iran and the US
  • Impact: Global tensions and nuclear program discussions are ongoing
Read Full Article →

Vonir standa til þess að stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum komist að samkomulagi, jafnvel strax í dag, um að ljúka stríðinu sem hófst með loftárásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 28. febrúar. Samningamenn ríkjanna hafa unnið að því að skrifa texta samkomulags sem bindi enda á stríðsátök og yrði til að opna fyrir umferð skipa um Hormússund. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að þokast hefði í samkomulagsátt og hótaði frekari árásum ef samningar næðust ekki. Hann hefur reyndar áður gefið frá sér álíka yfirlýsingar án þess að úr þeim rættist. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að það væri möguleiki á því að góðar fréttir bærust á næstu klukkustundum. Rubio sagði að samkomulagið sem nú er í vinnslu myndi marka upphaf að ferli þar sem „heimurinn þarf ekki lengur að óttast eða hafa áhyggjur af írönskum kjarnorkuvopnum“. Enn ríkir mikil óvissa um hvað felst í því samkomulagi sem unnið er að. Bandaríski fréttavefurinn Axios hefur eftir þarlendum embættismanni að helstu efnisatriði samkomulagsins sem unnið er að séu þessi: Framlenging vopnahlés um 60 daga Opnun Hormússunds meðan vopnahléið er í gildi Íranar fá að selja olíu án takmarkana og ýmsum viðskiptaþvingunum er aflétt Viðræðum verður haldið áfram um kjarnorkuáætlun og -vopn Írana AFP-fréttastofan hafði eftir írönskum embættismönnum að umræðum um kjarnorkuvopn yrði seinkað um 60 daga eftir að samningur tækist. Fars-fréttastofan í Íran sagði að Bandaríkjastjórn hefði samþykkt að losa um hluta íranskra fjármuna sem hafa verið frystir erlendis vegna alþjóðlegra viðskiptaþvingana gegn ríkinu. Um leið yrði hafnbanni á Íran aflétt. Íranar myndu í skiptum fyrir þetta leyfa umferð flutningaskipa um Hormússund. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, fagnaði því að gangur væri í viðræðum Írana og Bandaríkjamanna. Hún sagði nauðsynlegt að draga úr átökum, opna Hormússund og tryggja fullt siglingafrelsi. Auk þess yrði að tryggja að Íranar fengju ekki að framleiða kjarnorkuvopn.

Share this article