Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Íranar saka Bandaríkjamenn um að hafa brotið vopnahlé

  • What: Iran accuses the US of violating a weapons treaty
  • Impact: Tensions between Iran and the US escalate
Read Full Article →

Utanríkisráðuneyti Írans sakar Bandaríkin um að hafa brotið vopnahlé milli landanna síðustu tvo sólarhringa. Ráðuneytið segir Bandaríkin hafa brotið það í Hormozgan-héraði í suðurhluta landsins, nærri Hormússundi. Reuters greinir frá . „Bandaríkin hafa framið gróft brot á vopnahléinu í Hormozgan-héraði síðustu 48 klukkustundirnar. Íran telur bandarísk stjórnvöld ábyrg fyrir öllum afleiðingum þessara árásargjörnu og óréttmætu aðgerða,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins. Talsmaður aðgerðarstjórnar Bandaríkjahers segir hann hafa gert árásir á skotmörk í Suður-Íran í gærkvöld. Herinn hafi einnig gert árásir á tvö skip sem voru að koma fyrir tundurduflum. Talsmaður sagði árásirnar hafa verið gerðar í sjálfsvörn til að verja bandaríska hermenn gegn ógnum frá írönskum hermönnum. Íranskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að sprengingar hefðu heyrst í hafnarborginni Bandar Abbas í Hormozgan-héraði. Samningaviðræður enn á borðinu Íranski byltingarvörðurinn sagðist áskilja sér lögmætan og ótvíræðan rétt til að hefna fyrir brot Bandaríkjanna á vopnahléinu og sagðist hafa skotið niður bandarískan dróna og skotið á bandaríska orrustuflugvél sem hafði farið inn í lofthelgi Írans. Seyed Majid Moosavi, yfirmaður flughers Íranska byltingarvarðarins, sagði hann reiðbúinn að bregðast við því sem hann lýsti sem broti á vopnahléinu. Hann gagnrýndi í færslu á samfélagsmiðlinum X að diplómatískar viðræður héldu áfram og sagði að samningaviðræður við óvininn væru hreint tap. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði við fjölmiðla í morgun að enn væri möguleiki á að ná samningi en að viðræður tækju nokkra daga. Rubio er í opinberri heimsókn á Indlandi. Hann bætti við að Hormússund yrði opnað á einn eða annan hátt. Samningaviðræður milli Bandaríkjanna og Írans hafa verið að mestu leyti fyrir millilið pakistanskra stjórnvalda en íranskir samningamenn ferðuðust til Katar í upphafi vikunnar til að ræða við samningamenn þar.

Share this article