Nauðsynlegt er að grípa til ráðstafana vegna aukinnar svifryksmengunar á höfuðborgarsvæðinu, að mati Hjalta Más Björnssonar bráðalæknis á bráðamóttöku Landspítalans og formanns félags lækna gegn umhverfisvá. Breyta þurfi skipulagsmálum svo fólk sé ekki eins háð því að keyra. „Það hafa komið margar rannsóknir á síðustu árum sem sanna það, svo það sé hafið yfir allan vafa, að loftmengun og svona svifryk veldur beinlínis hjartaáföllum og kransæðastíflum og heilablóðföllum og er mjög skaðleg. Þetta er krabbameinsvaldandi og svo er í þessu örplast sem berst inn í líkamann, inn í blóðrásina og inn í frumur. Við erum fyrst og fremst að anda að okkur dekkjakurli og malbikskurli sem búið er að spæna upp af götunum af bílaumferðinni. Þetta þeytist síðan upp í loftið og fer ofan í lungun hjá okkur,“ sagði Hjalti Már í Morgunútvarpinu á Rás 2. Hann segist ekki skilja almennilega ráðleggingar til fólks að halda sig inni og forðast áreynslu utandyra þegar svifryk er mikið. „Vegna þess að langmesta mengunin er á umferðargötunum. Þar eru bílarnir að keyra hver á eftir útblæstrinum og rykinu sem næsti bíll á undan þeytir upp. Fólk ímyndar sér oft að miðstöðin sé með filtera sem hreinsa þetta úr og þess vegna komi hreint loft inn í bílinn. En einna mesta mengunin er einmitt inni í bílunum. Þvert á móti á fólk alls ekki að nota bílana á svona dögum, til að forða sjálfu sér frá mengun.“ Eina sem virki sé að draga úr akstri og koma þurfi til móts við fólk sem vill ekki nota bílinn, en neyðist til þess. „Það þarf að breyta skipulaginu og það á að vera skilyrðislaust að réttur fólks til að anda að sér hreinu lofti og fá hreyfingu er ríkari en réttur fólks til þess að vera að keyra,“ sagði Hjalti Már Björnsson. Fólk er verr varið loftmengun í bílum í umferðinni heldur en undir berum himni, að sögn læknis sem furðar sig á tilmælum til fólks að forðast það að vera úti þegar svifryk mælist hátt.