Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni gerð óvirk við ólympíusvæði í Predazzo

  • What: An unexploded World War II bomb was found near the Winter Olympics venue in Predazzo, Italy.
  • Impact: Bomb disposal experts safely defused the device, posing no threat to the public.
Read Full Article →

Handsprengja úr seinni heimsstyrjöldinni fannst á bílastæði við keppnissvæði Vetrarólympíuleikanna í ítalska bænum Predazzo á sunnudag. Sprengjusérfræðingar gerðu hana óvirka og að sögn lögreglu skapaðist aldrei hætta fyrir almenning. Sprengjan fannst degi eftir úrslit fóru fram í stórum stökkpalli karla á stökkpallinum í Predazzo. Þar tryggði slóvenski stökkvarinn Domen Prevc sér gullverðlaun með 141,5 metra stökki sem jafnframt var vallarmet. Mikill fjöldi áhorfenda var á svæðinu vegna keppninnar á laugardag. Að sögn yfirvalda fannst sprengjan á bílastæði sem nýtt hefur verið sem samgöngumiðstöð fyrir leikana. Svæðið er jafnan notað sem geymslusvæði fyrir timbur en hefur tímabundið verið breytt til að taka á móti rútum og einkabílum gesta sem sækja keppni í Val di Fiemme en í dalnum er keppt í skíðastökki í Predazzo og skíðagöngu í Tesero. Smærri gestgjafabæir, á borð við Predazzo og Anterselva, hafa reitt sig á slík tímabundin úrræði til að mæta auknu álagi á meðan Vetrarólympíuleikarnir standa yfir. Leikarnir eru meira en hálfnaðir og komið inn í lokaviku þeirra því þeim lýkur á sunnudag. Yfirvöld á Ítalíu segjast áfram vera á varðbergi og tryggja öryggi keppenda og gesta á víðfeðmum gestgjafasvæðum leikanna.

Share this article