Fjallaskíði er nýjasta grein Vetrarólympíuleikanna. Keppt var í sprettgöngu kvenna og karla í dag og á laugardaginn verður keppt í blandaðri boðgöngu. Í greininni ganga keppendur upp fjall á skíðunum, og brattari kafla með skíðin á bakinu, og renna sér svo aftur niður í mark. Sá sem er fyrstur niður vinnur. Nánar má lesa um greinina hér: Í sprettgöngu er hver sprettur nokkuð stuttur, í kringum þrjár mínútur, en keppt er í riðlum, undanúrslitum og svo úrslitum þar sem sex keppendur berjast um gullið. Það skiptir ekki síður máli að vera snöggur á skiptisvæðunum en að ganga og renna sér hratt og greinin bíður upp á mikla dramatík. Hér fyrir neðan má sjá úrslitin bæði í kvenna- og karlaflokki og sigurvegararnir eru listaðir þar fyrir neðan, til þess að eyðileggja ekki spennuna fyrir áhorfendum. Konur: Ein ný grein er á Vetrarólympíuleikunum í ár; fjallaskíði. Greinin kallast ski mountaineering á ensku og er yfirleitt stytt í skimo. Úrslit í sprettgöngu kvenna og karla var nú í dag og óhætt að segja að þau hafi verið spennandi. Karlar: Ein ný grein er á Vetrarólympíuleikunum í ár; fjallaskíði. Greinin kallast ski mountaineering á ensku og er yfirleitt stytt í skimo. Úrslit í sprettgöngu kvenna og karla var nú í dag og óhætt að segja að þau hafi verið spennandi. Sigurvegarar í sprettgöngu á fjallaskíðum: Konur: Marianne Fatton (Sviss) Emily Harrop (Frakkland) Ana Alonso Rodriguez (Spánn) Karlar: Oriol Cardona Coll (Spánn) Nikita Filippov (Er Rússi en keppir undir hlutlausum fána) Thibault Anselmet (Frakkland)