Sakamál á hendur karlmanni sem er ákærður fyrir að áreita barnabarn sitt kynferðislega var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn er einnig ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi. Maðurinn er ákærður fyrir að þukla mjaðmir, læri og nára stúlkunnar og snerta kynfæri hennar innanklæða. Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar. Foreldri stúlkunnar krefst 3,5 milljóna króna í miskabætur fyrir hennar hönd. Héraðsdómur Reykjavíkur.©Þórgunnur Oddsdóttir