Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Alls ekki snerta dauða fugla

  • What: People in Iceland are advised to avoid touching dead birds due to the risk of bird flu.
  • Impact: Pets, especially cats, can be infected, and humans should contact the authorities if they find dead birds.
Read Full Article →

Andrea Björk Hannesdóttir dýralæknir hjá Dýrheimum hvetur fólk til að fara varlega og alls ekki snerta dauða fugla finni það slíka úti í náttúrunni. Þá þurfa gæludýraeigendur að fylgjast vel með dýrum sem gætu komist í snertingu við fuglshræ. Finni fólk dauða fugla skal það hafa samband við Matvælastofnun (MAST) en nánari upplýsingar um viðbrögð við dýrasjúkdómum er að finna á vef stofnunarinnar. Dæmi eru um að kettir hér á landi hafi drepist eftir smit af fuglaflensu og hundar geta líka smitast en virðast ekki verða eins veikir. Helstu einkenni eru lystarleysi og slappleiki, stífleiki, skjálfti eða krampar, hiti eða öndunareinkenni. Rætt var við Andreu Björk í Mannlega þættinum á Rás 1 og má hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

Share this article