- What: A highly virulent strain of avian influenza is spreading in Antarctica, potentially causing high mortality among infected animals.
- Impact: The virus could kill 90-100% of birds in affected areas within days, posing a significant threat to the Antarctic ecosystem.
Vísindamenn vara við útbreiðslu sérlega hættulegs fuglaflensuafbrigðis á Suðurskautslandinu sem gæti valdið dauða næstum allra þeirra dýra sem smitast. Afbrigðið fannst í fimm skúmum árið 2024 að sögn chileska vísindamannsins Victor Neira. Veiran hefur síðan dreift sér í aðrar tegundir á þeirri níu hundruð kílómetra löngu strandlengju sem rannsökuð var nýlega. Þeirra á meðal eru mávar, skarfar, mörgæsir og selir. Hópar vísindamanna dvelja tímabundið á Suðurskautinu við rannsóknir en hafa þar ekki fasta viðveru. Veiran hefur skotið sér niður á nærri öllum þeim svæðum sem vísindamenn geta heimsótt, segir Neira í samtali við AFP. Victor Neira kveður veiruna svo banvæna að hún geti grandað 90 til 100 prósentum fugla á örskömmum tíma, einum til tveimur dögum, á tilteknum svæðum. Heildarstofn tegunda á Suðurskautinu er oft fremur lítill, sem Neira segir skapa verulega hættu á faraldri. Talið er að stofn Suðurskautsskúms og skarfs telji um 20 þúsund fugla, svo dæmi sé tekið. Síðustu fimm ár hafa fuglar og spendýr sýkst og drepist af völdum fuglaflensufaraldurs sem berst með farfuglum um víða veröld. Til dæmis greindist skæð fuglaflensa nýlega í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu. Viðbúnaðarstig vegna fuglainflúensu hefur verið á óvissustigi hérlendis síðan í haust, að því er segir á vef MAST . Fyrir þremur árum drápust þúsundir mörgæsa í Chile, af tegund í viðkvæmri stöðu, kenndar við þýska landkönnuðinn Alexander von Humboldt.