Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hljóðmengun hefur áhrif á atferli fugla um allan heim

Read Full Article →

Hljóðmengun hefur áhrif á atferli fugla um allan heim og truflar makaleit þeirra, leit að fæðu og getu til að forðast hættur. Þetta kemur fram í greiningu hóps vísindamanna á rannsóknargögnum til nærri fjörutíu ára sem ná yfir ýmsar fuglategundir í sex heimsálfum jarðarinnar. Vísindafólkið tók saman og greindi rannsóknargögn fyrir um 160 fuglategundir úr rannsóknum allt aftur til 1990 til að kanna hvort hægt væri að greina niðurstöður á breiðum grunni. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að hljóðmengun hefur gríðarlega mikil áhrif á samskipti, fæðuöflun, mökun, búsetusvæði og fjölgun fugla. Fuglar treysta á upplýsingar frá öðrum fuglum í umhverfi sínu til að lifa af og þar af leiðandi eru þeir viðkvæmir fyrir nútímahávaða líkt og frá bílum, tækjum og þéttbýlishljóðum. „Fuglar syngja til að finna sér maka, vara við árás, og ungar tísta á foreldra sína til að fá fæði,“ segir Natalie Madden sem leiddi rannsóknina við Háskólann í Michigan í Bandaríkjunum. Áhrifin eru mismikil á fuglategundir. Fuglum sem verpa nærri jörðu gengur verra að koma upp ungum en þeim fuglum sem verpa í meiri hæð frá jörðu. Þá mælist hærra magn stresshormónsins kortisól í fuglum sem eru í þéttbýli en í fuglum sem búa utan þéttbýlis. Vísindafólkið sem vann skýrsluna segir að áhrif hljóðmengunar séu vanmetin afleiðing af áhrifum mannkyns á náttúruna, sérstaklega samanborið við aðra stóra áhrifaþætti eins og tap búsetusvæða og breytingar á loftslagi. Allt að sextíu og eitt prósent fuglategunda heimsins fer fækkandi, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðasambandi náttúruverndarsamtaka í október.

Share this article