Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ólögleg sala fálka: „Ekki taka þátt í þessum gráa leik“

  • What: An article discusses the illegal sale of falcons in Iceland.
  • Impact: The sale of protected species is illegal without permits from authorities.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.2.2026 | 11:10 Ólögleg sala fálka: „Ekki taka þátt í þessum gráa leik“ Ólafur Karl segir það hégóma að hafa uppsettan fálka uppi í hillu. Hvetur hann fólk frekar til að kaupa sér fallega myndabók eða fara í fuglaskoðun. Samsett mynd/skjáskot/Facebook/Brask og brall/mbl.is/Hallur Uppstoppaður fálki var á dögunum auglýstur til sölu á sölusíðunni Brask og brall á Facebook. Ásett staðgreiðsluverð samkvæmt auglýsingunni er 300 þúsund krónur. Fuglaunnendur veltu í kjölfarið fyrir sér á samfélagsmiðlum hvort almennt sé í lagi að auglýsa og selja uppstoppaða fálka enda fuglategundin friðuð. Samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum er óheimilt að veiða, hafa í vörslu sinni eða selja fálka nema með sérstökum leyfum frá yfirvöldum. mbl.is fékk sérfræðinga Náttúrufræðistofnunar til liðs við sig og voru þeir fengnir til að rýna í ljósmyndir af hinum uppstoppaða fugli. Niðurstaða þeirra er að enginn vafi leiki á því að fálkinn sé nýlega uppsettur, sem sé ólögleg gjörð. Auglýsingin var sett inn á sölusíðuna Brask og brall á Facebook þar sem meðlimir eru 136 þúsund talsins. Skjáskot/Facebook/Brask og brall Viljandi gjörningur Dr. Ólafur Karl Nielsen, líffræðingur og fremsti fálkafræðingur landsins, segir að því miður séu mál sem þessi engin ný sannindi. Hann segir fólk halda að það sé með ótrúleg verðmæti í höndunum og vilji innheimta aurinn en uppsettur fálki verði aldrei annað en skugginn af því sem hann var í lifanda lífi. Ólafur segist ekki vera inni í kollinum á brotamönnunum en hann gerir ráð fyrir því að stærstur hluti brotanna sé viljandi gjörningur. „Obbinn af veiðimönnum er heiðarlegt og löghlýðið fólk en svo er einhver hluti þessa samfélags – eins og raunin er í öllum samfélögum – sem getur ekki fylgt reglum. Ég er nú sjálfur skotveiðimaður og þú skýtur ekki á bráðina nema þú vitir hvað þú ert að gera.“ Frétt af mbl.is Bólusetja fálka eða fanga þá og geyma „Það er bara hégómi“ Ólafur hvetur hugsanlega kaupendur uppsettra fálka til að taka ekki þátt í þessari vitleysu. „Það að vera með uppsettan fálka uppi á hillu er bara hégómi. Ef fólk vill njóta fálkans ætti það annaðhvort að kaupa sér fallega myndabók, eins og Daníel Bergmann gaf út um fálkann fyrir nokkrum árum, en þá getur fólk séð myndir af fálkanum í sínu náttúrulega umhverfi og fræðst um hann eða það getur farið út í náttúruna og skoðað fugla og ef það er heppið getur það séð fálka en í guðanna bænum ekki taka þátt í þessum gráa leik.“ Segir Ólafur þetta bæði löglaust og siðlaust og með þessu sé fólk hægt og bítandi að grafa undan fálkastofninum, sem síst megi við því nú verandi hreinlega í útrýmingarhættu af öðrum ástæðum en þar vísar hann til fuglaflensufaraldursins sem leikið hefur íslenska fálkastofninn grátt. Frétt af mbl.is Fuglaflensa gengur nærri fálkastofninum Biður fólk að sýna varúð Í því sambandi biður Ólafur fólk sem gengur fram á fálkahræ að sýna fulla varúð. „Snertið það ekki með berum höndum en endilega hirðið ef möguleiki er á, setjið í plastpoka og komið því til Náttúrufræðistofnunar eða til annars ábyrgs aðila eins og Matvælastofnunar.“ Ekki náðist í seljanda uppsetta fálkans við vinnslu fréttarinnar. Ein af ljósmyndum Daníels Bergmanns, sem Ólafur vísar til. Íslenski fálkinn er tignarlegur fugl sem samkvæmt Ólafi er nú í útrýmingarhættu. Ljósmynd/Daníel Bergmann Manchester United með eftirsjá Vill ekki halda áfram í leðjuslag Ólögleg sala fálka: „Ekki taka þátt í þessum gráa leik“ Afhentu sautján nýja sjúkrabíla Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Tvöföld veikindi hjá því opinbera Piparúðanum var beitt í Neðra-Breiðholti 74% íbúða seldust á undirverði Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Manchester United með eftirsjá Vill ekki halda áfram í leðjuslag Ólögleg sala fálka: „Ekki taka þátt í þessum gráa leik“ Afhentu sautján nýja sjúkrabíla Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Ásökun um vanhæfi Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Svartsýni í könnun SI um markaðinn Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Tvöföld veikindi hjá því opinbera Piparúðanum var beitt í Neðra-Breiðholti 74% íbúða seldust á undirverði Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article