Innlent | Morgunblaðið | 3.3.2026 | 13:20 Rannsókn sýnir rjúpu styggari á veiðitíma Rjúpan verður styggari þegar veiðitíminn nálgast, en spekist að honum loknum og er þá síður vör um sig. Á það við bæði á Íslandi og Ítalíu. Ljósmynd/Pétur Alan Guðmundsson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Niðurstöður rannsóknar á atferli rjúpna og áhrifum veiða á fuglinn sýna að á svæðum þar sem rjúpnaveiðar voru stundaðar urðu fuglarnir greinilega styggari á veiðitímabilinu miðað við vikurnar á undan. Rjúpurnar létu fólk síður nálgast sig og flugu fyrr upp en áður. Þegar veiðitímabilinu lauk dró úr þessari varfærni og hegðunin færðist til fyrra horfs. Á svæðum þar sem veiðar voru ekki leyfðar var hegðun fuglanna hins vegar nánast óbreytt allt tímabilið. Frá þessu er greint í vísindagrein sem nýverið var birt í tímaritinu Wildlife Biology og sagt er frá á vef Náttúrufræðistofnunar. Greinin er hluti af doktorsverkefni Farina Sooth, en hún er þýsk og stundar nám við háskólann í Freiburg í Þýskalandi. Leiðbeinandi hennar er Ilse Storch, en Ólafur Karl Nielsen, vistfræðingur og starfsmaður Náttúrufræðistofnunar, er meðal höfunda greinarinnar. Í greininni er fjallað um hvernig rjúpur bregðast við nærveru fólks á veiðitíma, en rannsóknin byggist á gögnum frá Íslandi og ítölsku Ölpunum og varpar ljósi á hvernig veiðar hafa áhrif á styggð fugla. Sambærilegt á milli landa Í samtali við Morgunblaðið segir Ólafur Karl að rannsóknin hafi bæði farið fram að vorlagi og einnig fyrir veiðitíma rjúpna, á veiðitíma og að honum loknum. Greinin fjallar um mælingarnar sem fram fóru á veiðitíma að hausti og fóru rannsóknir bæði fram á Reykjaheiði á Norðurlandi og í Ölpunum. Undir voru svæði þar sem rjúpan naut friðunar sem og svæði þar sem veiðar voru leyfðar. Segir Ólafur Karl að niðurstöðurnar hafi verið sambærilegar á milli landa, en styggð rjúpna jókst eftir því sem nær veiðitímanum dró. Var sú hegðan fuglsins túlkuð á þann veg að menn væru farnir að líta til rjúpna með hunda fyrir veiðitímann. „Þegar veiðitíminn hófst urðu rjúpurnar mjög styggar og flugu oft upp utan haglabyssufæris,“ segir Ólafur Karl og nefnir að það hátterni hafi haldist út veiðitímann. Öðru máli hafi gegnt þar sem rjúpan var friðuð. Hins vegar hafi fuglinn orðið síður var um sig þegar veiðitíminn var úti. Dregur úr styggðinni Fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar að í rannsókninni hafi verið gengið að sitjandi rjúpum og mælt hversu nálægt þeim hægt væri að komast, áður en þær flugu upp og forðuðu sér. Fjarlægðarmælingin var notuð sem vísbending um hversu varar rjúpurnar voru um sig gagnvart manninum. Rannsóknirnar eru sagðar sýna að rjúpur geti brugðist hratt við aukinni áhættu í umhverfinu og lagað hegðun sína að aðstæðum. Þær sýni einnig að á svæðum þar sem ekki er veitt séu þær spakari en á veiðisvæðum. „Rjúpurnar bregðast við ofsóknum og verða styggari, þær niðurstöður eru mjög skýrar. Síðan dregur úr styggðinni þegar veiðitíminn er búinn,“ segir Ólafur Karl. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Elliði verðlaunaður í annað sinn Rannsókn sýnir rjúpu styggari á veiðitíma Leggja á ráðin um kjarnavopnasamstarf Flytja heim þúsundir strandaglópa Komu í veg fyrir árás á alþjóðaflugvöll í Katar Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Búið að tendra í púðurtunnu Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Eignir meira virði en bókhald sýnir Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Straumleysi í firðinum: „Ekki komið svona vont veður í mörg ár“ Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Eignir meira virði en bókhald sýnir Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Elliði verðlaunaður í annað sinn Rannsókn sýnir rjúpu styggari á veiðitíma Leggja á ráðin um kjarnavopnasamstarf Flytja heim þúsundir strandaglópa Komu í veg fyrir árás á alþjóðaflugvöll í Katar Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Eignir meira virði en bókhald sýnir Beint: Átökin í Mið-Austurlöndum breiðast út Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Straumleysi í firðinum: „Ekki komið svona vont veður í mörg ár“ Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Eignir meira virði en bókhald sýnir Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju