Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sérstök gata fyrir fjölskyldur fallinna hermanna

Read Full Article →

Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong Un, klippti á borða við opnun nýrrar götu í höfuðborginni Pyongyang í gær. Við götuna eru nokkur fjölbýlishús sem ætluð eru fjölskyldum hermanna sem hafa fallið á víglínunni í Úkraínu, að því er norðurkóreski ríkisfjölmiðillinn KCNA greinir frá. Stjórnvöld í Norður-Kóreu eru miklir bandamenn stjórnvalda í Rússlandi og er talið að þau hafi sent yfir 14.000 hermenn til berjast við hlið Rússlandshers. Talið er að um 2.000 þeirra hafi fallið. Þá er talið að Norður-Kóreumenn hafi að launum fengið fjárhagsaðstoð, tæknibúnað fyrir vopn og mat. Mikil viðhöfn var við opnun götunnar og var flugeldum skotið á loft. AFP fréttaveitan hefur eftir Hong Min, sérfræðingi hjá Korea Institute of National Unification , hugveitu sem er fjármögnuð af stjórnvöldum í Suður-Kóreu, að tímasetning vígsluathafnarinnar sé ekki tilviljun. Fyrir flokksþing Kommúnistaflokksins síðar í mánuðinum eigi að sýna að fjölskyldur fallinna hermanna fái ríflegar bætur.

Share this article