Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vonlítil um stríðslok og óttast um fjölskylduna á hernumdu svæði

Read Full Article →

Kona frá Úkraínu, sem flutti hingað til lands ári áður en innrás Rússa í landið hófst, segir erfitt að halda í vonina um að stríðinu ljúki - nærri fjórum árum eftir að það hófst. Hún vill ekki þekkjast í viðtalinu því hún óttast um fjölskyldu sína sem býr á svæði sem Rússar hafa hernumið. Upplifir leiða, þunglyndi og ótta fjórum árum síðar Rússar náðu borginni Kherson, í samnefndu héraði, á sitt vald skömmu eftir innrásina. Úkraínuher tókst að endurheimta borgina en hluti Kherson-héraðs er enn á valdi Rússa - og á því svæði býr fjölskylda konunnar; foreldrar og bróðir. Hún flutti hingað til lands ári áður en stríðið hófst en segir eins og það hafi verið í gær, að hún heyrði af innrásinni. „Ég grét og var mjög sorgmædd í upphafi. En nú eru liðin fjögur ár og það er eins og allar þessar tilfinningar síðan þá séu horfnar. Það er skrítið að lýsa því en ég er óttaslegin. Ég óttast um fjölskyldu mína og ættingja. En ég er líka þunglynd og hef ekki neinn vilja til að gera eitthvað nýtt,“ segir hún. „Ég get ekki bara haldið áfram og lifað lífinu eins og ekkert sé því ég er mjög leið hið innra og það er engin von,“ segir hún. Ef rússneskum hermönnum mislíkar að þú talir úkraínsku gætu þeir drepið þig Rússar eru með strangt eftirlit með heimafólki á hernumdu svæðunum. Af þeirri ástæðu lætur hún ekki nafn síns getið því hún óttast hvaða áhrif það gæti haft á fjölskylduna. „Það er stórhættulegt að lifa undir hernámi Rússa. Enginn má sýna stuðning sinn við Úkraínu, fólk er drepið fyrir slíkt,“ segir konan. „Lögin eru eins og rússnesku hermönnunum sýnist. Ef rússneskum hermönnum mislíkar að þú talir úkraínsku gætu þeir drepið þig.“ Fólk hafi verið drepið í mótmælum gegn stríðinu. Nágranni föður hennar hafi til að mynda horfið sporlaust eftir að hann neitaði að fá rússneskt vegabréf. Hennar versti ótti er að þurfa að fá rússneskt vegabréf. En án þess kemst hún ekki heim - þangað sem hún hefur ekki farið síðan í janúar 2022. „Þegar þú býrð í Úkraínu en neyðist til að fara eftir lögum annars ríkis og mátt ekki segja þína skoðun - hvernig líf er það? Það er ekkert frelsi,“ segir hún. Vestrænir leiðtogar geti gert meira til að frelsa Úkraínu Vestrænum leiðtogum hafi ekki tekist nógu vel að hafa raunveruleg áhrif. Evrópa og Bandaríkin séu sterk saman, og geti stöðvað stríðið. Draumurinn er að Kherson-hérað og Úkraína öll verði frjáls. „Mig dreymir í raun og veru um að Rússar verði einhvern veginn þvingaðir til að draga sig frá Úkraínu. Að allir hermennirnir fari aftur til Rússlands og Úkraína verði frjáls,“ segir hún.

Share this article