Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sífellt fleiri lík finnast í fjöldagröfum á Gaza

Read Full Article →

Umferð um Rafah landamærastöðina milli Gaza og Egyptalands er takmörkuð og enn bíða þúsundir þess að komast undir læknishendur utan Gaza. Fórnarlömbum Ísraelshers heldur áfram að fjölga, þrátt fyrir vopnahlé. Systkinin Muhammad og Farah Al-Sayed eru á meðal þeirra sem bíða þess að komast frá Gaza. „Ég særðist á fæti í stríðinu, húsið mitt var sprengt á meðan ég var inni,“ segir Muhammad. Enn bíða þúsundir á Gaza sem þurfa læknismeðferð annars staðar, þótt búið sé að opna landamærin við Egyptaland. Þótt vopnahlé hafi staðið í fjóra mánuði heldur Ísraelsher áfram árásum. Hann segir sjö aðgerðir hafa verið gerðar á fætinum, án árangurs. Farah systir hans missti auga og þarf líka aðgerð. Hún fæddist með CP hreyfihömlun. „Börnin mín þurfa læknismeðferð, það er komið eitt og hálft ár og enn er ekkert í boði,“ segir Karema Al-Sayed móðir Muhammads og Föruh. Landamærastöðin við Egyptaland er opin fyrir umferð en hún er afar takmörkuð. „Þau þurfa virkilega meðferð. Sérstaklega sonur minn sem er illa særður með sýkingar og þarf beinígræðslu,“ segir Karema. Vopnahlé hefur staðið í rúma fjóra mánuði en fórnarlömbum Ísraelshers heldur samt áfram að fjölga á hverjum degi. Þá finnast sífellt fleiri lík á Gaza. Nýverið uppgötvaðist fjöldagröf í Deir al-Balah með 53 líkum. Mitt í þessu öllu saman reynir fólk að halda áfram með lífið. Í síðustu viku var fótboltavöllur opnaður í Gazaborg - umkringdur húsarústum. „Við vonumst til þess að fá íþróttirnar í líf okkar aftur. Við vonum að íþróttafélögin hefji starfsemi á ný, rústirnar verði fjarlægðar og gert við íþróttavellina,“ segir Khalil Abu Sultan, fyrrum fótboltamaður, sem var mættur á völlinn eftir langa bið.

Share this article