- What: A new study estimates that between 3% and 4% of the population of Gaza died in the first fifteen months of the war.
- Impact: The study, published in The Lancet, estimates 75,000 deaths, significantly higher than previous reports.
Umtalsvert fleiri létu lífið á fyrstu fimmtán mánuðum Gaza-stríðsins en hingað til hefur verið talið. Tölur heilbrigðisyfirvalda hafa verið taldar áreiðanlegar. Ný rannsókn sem birtist í vísindaritinu Lancet leiðir í ljós að fjöldi þeirra sem drepnir voru er 75 þúsund en ekki 49 þúsund líkt og heilbrigðisráðuneyti Hamas hafði áður greint frá. Í greininni segir að þrjú til fjögur prósent íbúa Gaza hafi látið lífið með voveiflegum hætti þessa fimmtán mánuði, að stærstum hluta konur, börn og roskið fólk, auk þess sem talsvert margir létust vegna óbeinna afleiðinga árása Ísraelshers. Höfundar segja rannsóknina þá fyrstu óháðu sem gerð hefur verið á dánartíðni á Gaza og byggir á samanburði á íbúafjölda. Fjöldi þeirra sem týnt hafa lífi á Gaza hefur oft verið dreginn í efa en Sameinuðu þjóðirnar og fleiri alþjóðastofnanir hafa talið upplýsingar heilbrigðisyfirvalda þar haldbærar. Ísraelskir miðlar sögðu í janúar að herinn féllist á tölur ráðuneytisins en hefur síðan sagt að þær pössuðu ekki við aðrar opinberar tölur. Heilbrigðisráðuneytið á Gaza segir Ísraelsher hafa drepið á sjöunda hundrað Palestínumanna frá því vopnahléð hófst í október.