Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rannsókn hafin á Shein vegna sölu á vörum sem tengjast barnaklámi og vegna neyslufíknar

  • What: The European Commission will investigate Shein for potential violations of the Digital Services Act.
  • Impact: The investigation will focus on addictive design practices and the sale of illegal products, including those related to child exploitation.
Read Full Article →

Netverslunarrisinn Shein verður tekinn til gagngerrar skoðunar hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á næstu vikum og mánuðum. Rannsókn á verslunarháttum Shein á meðal annars að beinast að hönnun verslunarviðmótsins, sem talið er ýta undir neysluhyggju (addictive design), auk þess sem sala Shein á ólöglegum vörum, meðal annars þeim sem tengjast barnaklámi, verður rannsökuð. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins greindi frá þessu um hádegisbil og segir í tilkynningu að rannsóknin verði sett í forgang, en stjórnvöld í Frakklandi hafa að undanförnu krafist þess að Evrópusambandið beiti refsiagerðum gegn Shein. Nær fjórðungur Íslendinga hafa keypt vörur í gegnum Shein, samkvæmt könnun sem Prósent gerði síðasta haust. Rannsókn Evrópusambandsins er gerð í krafti reglugerðar um netþjónustu (Digital Services Act), sem verið hefur í gildi innan ESB síðan í febrúar 2024, en hefur enn ekki verið innleidd á Íslandi.

Share this article