- What: The European Commission will investigate Shein for potentially promoting consumer addiction and selling products related to child abuse.
- Impact: Shein's business practices will be scrutinized under the Digital Services Act.
Netverslunarrisinn Shein verður tekinn til gagngerrar skoðunar hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á næstu vikum og mánuðum. Rannsókn á verslunarháttum Shein á meðal annars að beinast að hönnun verslunarviðmótsins, sem talið er ýta undir neysluhyggju (addictive design), auk þess sem sala Shein á ólöglegum vörum, meðal annars þeim sem tengjast kynferðislegu ofbeldi gegn börnum, verður rannsökuð. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins greindi frá þessu um hádegisbil og í tilkynningu segir að rannsóknin verði sett í forgang. Stjórnvöld í Frakklandi hafa að undanförnu krafist þess að Evrópusambandið beiti Shein refsiagerðum. Nær fjórðungur Íslendinga hafa keypt vörur í gegnum Shein, samkvæmt könnun sem Prósent gerði í haust. Rannsókn Evrópusambandsins er gerð í krafti reglugerðar um netþjónustu (Digital Services Act), sem verið hefur í gildi innan ESB síðan í febrúar 2024, en hefur enn ekki verið innleidd á Íslandi.