Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Svona er nýja Reykjavíkurleiðin

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.2.2026 | 11:32 | Uppfært 11:47 Svona er nýja Reykjavíkurleiðin Líf Magneudóttir og Helga Þórðardóttir á fundinum í dag. mbl.is/Karítas Ný Reykjavíkurleið býður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa leikskóladvöl, hóflegt gjald fyrir 38 tíma dvöl og aukinn afslátt fyrir einstæða forelda og tekjulágar fjölskyldur. Þá verður lögð áhersla á að styrkja faglegt starf og efla íslenskukunnáttu starfsfólks. Þetta kemur fram í tilkynningu borgarinnar. Þar segir að tillögurnar byggi á víðtæku samráðsferli við foreldra, starfsfólk, leikskólastjórnendur og verkalýðsfélög, og unnið hafi verið úr tæplega 200 umsögnum sem bárust í gegnum samráðsgáttina. 36 tíma gjaldfrjáls dvöl og hámarksdvalartími óbreyttur Ein af stærstu breytingunum er að boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa leikskóladvöl á viku. Foreldrar greiða eingöngu fyrir fæði ef dvalartíminn er innan þessara marka. Sparnaður getur numið allt að 168 þúsund krónum á ári. Gjald fyrir 38 tíma vistun verður 7.000 krónur á mánuði, auk fæðisgjalds. Þetta er lægra en í fyrri tillögum og var tekið sérstaklega tillit til athugasemda foreldra í samráði. Hér geta foreldrar séð hvernig breytingar á gjaldskrá koma út fyrir sína fjölskyldu. Nýir afsláttarflokkar eru settir inn fyrir þau börn sem þurfa lengri vistun og eru sérstaklega hannaðir til að styðja einstæða foreldra og tekjulág heimili. Með þessu segist borgin bregðast við helstu ábendingum sem bárust í samráðinu. Hámarksdvalartími helst óbreyttur, eða allt að 42,5 klukkustundir á viku, en engar breytingar eru gerðar á heildarfjölda leikskólaplássa. Fjölskyldur sem þurfa lengri vistun hafa því áfram þann möguleika. Blaðamannafundur um leikskólamálin var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. mbl.is/Karítas Foreldrar skrái raunverulegan dvalartíma Markmið breytinganna eru sagðar eiga að bæta starfsaðstæður og stöðugleika í leikskólum. Á undanförnum árum hafa sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu stytt dvalartíma barna og samkeppni um starfsfólk hefur leitt til áskorana í Reykjavík, að því er fram kemur í tilkynningunni. Með nýrri leikskólaleið er stefnt að því að draga úr fáliðun, auka fyrirsjáanleika, efla faglegt starf og tryggja stöðugri mönnun yfir árið. Leitast er eftir samstarfi við foreldra um að skrá einungis þann dvalartíma sem raunveruleg þörf er fyrir. Gögn sýna að foreldrar greiða núna fyrir að jafnaði um 10% lengri vistun en þau nýta sem kallar á fleira starfsfólk á ákveðnum tímum dags en þörf er á. Systkinasameining styrkt, íslenskan efld og húsnæðisöryggi bætt Tillögurnar gera ráð fyrir að systkinasameining verði viðhöfð að ákveðnum skilyrðum uppfylltum í stóru innrituninni sem fer að mestu fram í mars. Í skilyrðum felst meðal annars að leikskóli þar sem systkini eru með vistun sé í fyrsta vali, að eldra systkini eigi eftir að vera áfram í leikskólanum að lágmarki í sex mánuði og að systkini séu með sama fjölskyldunúmer í þjóðskrá. Lagt verður upp með fjölbreyttar aðgerðir til að efla íslenskukunnáttu starfsfólks af erlendum uppruna og styrkja íslenskt málumhverfi barna í leikskólum. Markmiðið er að stuðla að betri samskiptum, skýrum leiðbeiningum og sterkari faglegri heild. Til að tryggja betra húsnæðisöryggi verða búin til ný stöðugildi fyrir umsjónarfólk leikskólahúsnæðis sem munu sjá um minni háttar viðhald og daglegan rekstur húsnæðis. Með þessu er einnig verið að draga verulega úr verkefnum tengdum umsjón húsnæðis frá stjórnendum leikskóla. Skráningardagar tvisvar á ári Til að tryggja rétta skráningu og bæta skipulag mönnunar mun foreldrum verða boðið að skrá vistun barna á frídögum tvisvar á ári: 10. – 20. september fyrir daga fram að áramótum. 10. – 20. janúar fyrir vorönn. Gjald fyrir hvern skráningardag verður 5.000 krónur og er í samræmi við gjald í frístund þessa daga. Þá verða leikskólar lokaðir annan daginn í febrúar þegar vetrarfrí grunnskóla stendur yfir. Aðgerðin er fyrsta skrefið í að sameina skipulag og skóladagatöl leikskóla og grunnskóla. Jafnréttismat: Lægri gjöld fyrir stóran hóp Samkvæmt jafnréttismati liggur fyrir að ný gjaldskrá muni leiða til verulegra lækkana fyrir stóran hóp foreldra, að því er fram kemur í tilkynningunni. Hækkunin snertir fyrst og fremst lengstu vistunartímana og tekjuhærri foreldra. Þá er lagt upp með að fylgjast grannt með áhrifum á verkaskiptingu heimila. Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Tveir á slysadeild eftir fjórhjólaslys Íbúðaverð hækkaði um 1,7% í janúar Skógarfarinn tjáir sig eftir skellinn mikla Svona er nýja Reykjavíkurleiðin Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Fólk farið að meðtaka veruleikann Besti árangur Íslendings í 20 ár Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann Ingu „gjörsamlega misboðið“ Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Telur skólann vera að bregðast syni sínum Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Tveir á slysadeild eftir fjórhjólaslys Íbúðaverð hækkaði um 1,7% í janúar Skógarfarinn tjáir sig eftir skellinn mikla Svona er nýja Reykjavíkurleiðin Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ „Það er aldrei of seint“: FBI rannsakar hanska Legurýmin gætu nýst von bráðar Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann Ingu „gjörsamlega misboðið“ Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Telur skólann vera að bregðast syni sínum

Share this article