Köldu veðri og snjókomu er spáð á suðvesturhorninu í dag og á morgun. Skíðasvæðið í Bláfjöllum stefnir á opnun eftir snjóléttan vetur. Gunnar Kr. Björgvinsson, rekstrarstjóri í Bláfjöllum, segir að stefnan sé sett á að opna svæðið á fimmtudaginn en aðeins hefur náðst að opna byrjendasvæðið í Bláfjöllum þrisvar í vetur. „Það hefur náttúrulega ekki snjóað neitt að ráði í vetur en við höfum getað framleitt nokkrum sinnum og tvisvar höfum við komist á það stig að geta opnað en þá hafa komið hlýindi eða hitakaflar.“ Gunnar segir snjóleysið hafa haft veruleg áhrif og vonar að brátt fari að bætast í. „Það er alltaf gott að fá sendingar af himnum,“ segir Gunnar. Pakkað fjall Aðstæður í Hlíðarfjalli hafa þó verið öllu betri, Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir veturinn hafa verið upp og ofan en að aðsóknin hafi verið mikil. Skíðasvæðið var opið stóran hluta desember en lokaði 20. desember vegna mikillar hlýnunar, hitamet var slegið á Akureyri þegar 16,9 stiga hiti mældist á aðfangadag, aldrei hefur mælst jafn hár hiti í desember á Akureyri frá upphafi mælinga. Brynjar segir að hamfarahlýnunin hafi orðið til þess að allur snjór hafi bráðnað. Svæðið opnaði aftur eftir áramót og traffíkin í fjallið var mikil. „Það eru bara búið að vera nokkuð nálægt 2000 manns í fjallinu hvern einasta laugardag, þá má segja að það sé bara pakkað fjall.“ Hann segir að veðurskilyrðin í fjallinu hafi verið til fyrirmyndar það sem af er ári og að afar lítill vindur hafi verið einkennandi fyrir veðrið. „Það er bara búið að vera rosalega gott veður hjá okkur ég man bara ekki eftir svona.“