- What: The Bláfjöll ski area is opening today from noon to 9 PM.
- Impact: Skiers can enjoy the slopes after recent snow production efforts.
Skíðafólk getur skellt sér í Bláfjöll í dag því skíðasvæðið verður opið frá tólf á hádegi til níu í kvöld. Starfsmenn skíðasvæðisins hafa síðustu daga unnið hörðum höndum að því að framleiða snjó og flytja hann til svo fólk geti farið á skíði. Vonir stóðu til að hægt yrði að opna í gær en þær brugðust. Nú er allt til reiðu. Í færslu um opnun skíðasvæðisins er fólki bent á að það sé nokkuð kalt og því gott að klæða sig vel. Lítill gönguhringur er í botni Kóngsgils og skíða- og brettaleigan er opin.