Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vilja opna í Bláfjöllum seinna í dag eða á morgun

Read Full Article →

Ekki hefur tekist að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum í dag en svæðið opnar um leið og aðstæður leyfa. Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum, vonar að það verði seinna í dag eða á morgun. „Staðan er sú að við erum svo sem búin að vera í alla nótt að ýta þessum snjó út sem við erum búin að framleiða. Það gengur svo sem ágætlega en það er samt eitthvað eftir. Þannig að við erum ekki að fara að opna klukkan tvö eins og við vorum búin að áætla,“ segir Einar. Mikið frost- og snjóleysi hefur verið á skíðasvæðinu það sem af er vetri og aðstæður til snjóframleiðslu reynst erfiðar. Byrjendasvæðið hefur til að mynda einungis verið nothæft þrisvar sinnum í vetur. Til stóð að opna hluta svæðisins í dag en vegna krefjandi veðurskilyrða og vinnu við tilfærslu á framleiddum snjó er það tímafrekt verkefni að koma snjónum á rétta staði. Einar er samt sem áður bjartsýnn á að skíðafólk geti lagt leið sína í Bláfjöll á morgun. „Við erum svo sem alveg í startholunum að gera eitthvað. Hugmyndin var á morgun í hádeginu að reyna að opna kannski tólf. Það er enn þá hugmynd en verður vonandi að veruleika ef veðrið gengur eftir og við fáum kannski ágætisveður,“ segir Einar.

Share this article