Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Andlát: Jón Þ. Ólafsson hástökkvari

Read Full Article →

Jón Þórður Ólafsson fæddist 21. júní árið 1941. Hann varð fljótt mikill íþróttamaður en Jón keppti í frjálsíþróttum fyrir ÍR. Á íþróttaferli sínum setti hann á þriðja tug Íslandsmeta í stökkgreinum en hans aðalgrein var hástökk. Jón setti meðal annars heimsmet unglinga í hástökki án atrennu árið 1961 þegar hann stökk yfir 1,70 m og Norðurlandamet innanhúss í fullorðinsflokki ári síðar þegar hann fór yfir 2,11 m. Jón blómstraði á sjöunda áratugnum og til marks um það var hann kjörinn íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna árið 1963 og lenti tvívegis í öðru sæti í kjörinu, árin 1962 og 1965. Jón keppti tvisvar á Ólympíuleikum, fyrst í Tókýó árið 1964 þar sem hann endaði í 25. sæti og á Ólympíuleikunum í Mexíkóborg árið 1968 hafnaði Jón í 27. sæti. Á íþróttaferli Jóns var saxstíllinn svokallaði við lýði, en hástökkvarar tóku þá atrennuna á fleygiferð og klofuðu svo yfir rána. Það var ekki fyrr en á leikunum í Mexíkó 1968 að Bandaríkjamaðurinn Dick Fosbury kom með stökkstílinn sem við þekkjum í dag, að stökkva upp á öðrum fæti og snúa bakinu í rána í loftinu. Auk þess að keppa á tvennum Ólympíuleikum keppti hann einnig tvisvar á Evrópumótinu utanhúss, árin 1962 og 1966. Jón studdi alla tíð dyggilega fyrir frjálsíþróttadeild ÍR og var mikill áhugamaður um varðveislu íslenskrar frjálsíþróttasögu. Jón starfaði lengst af sem skrifstofustjóri hjá Fiskmati ríkisins en einnig hjá Framleiðslueftirliti sjávarafurða, Fiskistofu og síðustu ár starfsferilsins hjá Matvælastofnun þar til hann lét af störfum þar árið 2011. Jón lést 25. janúar á Sóltúni að því er fram kemur í dánartilkynningu. Hann lætur eftir sig tvo syni, Ólaf Örn og Kjartan Inga.

Share this article