Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.2.2026 | 20:40 „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Tillagan var lögð fram á borgarstjórnarfundi fyrr í dag og snýr að því að farið verði í heildstæða endurskoðun á þeim breytingum sem gerðar voru þegar beygjuvasar voru fjarlægðir og svokölluð snjallljósastýring sett upp. mbl.is/Eggert Jóhannesson Tillögu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um endurskoðun umferðarskipulags við Höfðabakka og Bæjarháls hefur verið vísað til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir núverandi ástand á svæðinu ekki gefa skýra mynd þar sem framkvæmdir séu enn yfirstandandi. Tillagan var lögð fram á borgarstjórnarfundi fyrr í dag og snýr að því að farið verði í heildstæða endurskoðun á þeim breytingum sem gerðar voru þegar beygjuvasar voru fjarlægðir og svokölluð snjallljósastýring sett upp. Frétt af mbl.is Framkvæmt í heimildarleysi „Umferðarteppur hafa aukist“ „Markmið þeirra framkvæmda sem ráðist var í á svæðinu átti að vera aukið öryggi og bætt skilvirkni. Raunin er hins vegar sú að umferðarteppur hafa aukist, flæði hefur versnað og umferð hefur í auknum mæli leitað inn í íbúðarhverfi þegar ökumenn reyna að komast hjá teppum á stofnæðinni,“ sagði Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er hann tók til máls um tillöguna á fundinum fyrr í dag. Sagði hann íbúa í Grafarvogi og nærliggjandi hverfum hafa lýst yfir áhyggjum. Þá væri enn alvarlegara að borgaryfirvöld hafi vitað fyrir fram að með því að fjarlægja beygjuvasa myndu aukast tafir í umferð. Greining sem unnin hafi verið fyrir borgina hafi sýnt að biðtími á háannatíma gæti farið úr níu sekúndum upp í allt að 92 sekúndur. „Sú greining var hins vegar hvorki lögð fram né kynnt borgarfulltrúum við töku ákvörðunarinnar.“ Frétt af mbl.is Talning sýnir fá alvarleg slys á Höfðabakka Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Krafa um að staldra við Sagði Björn þá það einnig liggja fyrir að engin slys hafi orðið á þeim beygjuvösum sem voru fjarlægðir þrátt fyrir áratugalanga notkun. Það dragi í efa þau rök sem breytingar hafi verið byggðar á. Aukinheldur sagði Björn að áhersla væri lögð á áhrif neyðaraksturs í tillögunni. Ákvarðanir sem gætu aukið tafir hjá slökkviliði, lögreglu og sjúkraflutningum væru ekki ásættanlegar. „Tillaga Sjálfstæðisflokksins er hvorki öfgar né afturhvarf. Hún er ábyrg krafa um að staldra við og meta raunveruleg áhrif þeirra aðgerða sem ráðist hefur verið í og leita lausna sem bæta bæði flæði og öryggi.“ Frétt af mbl.is Fékk ekki að kynna sér glundroðann Unnið að því að bæta öryggi Tók þá til máls borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Dóra Björt Guðsjónsdóttir, og minntist þar á að nú standi yfir endurnýjun á umferðarljósabúnaði á Höfðabakka með það að markmiði að snjallvæða umferðarljósastýringarnar. „Það var eitthvað sem þurfti nauðsynlega að gera vegna þess að umferðarljósin voru komin til ára sinna.“ Sagði Dóra að slíkar viðgerðir hefðu verið til tals innan borgarinnar í fleiri ár og að verið væri nú að svara kallinu. Þá væri á sama tíma verið að bæta öryggi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem fara reglulega um svæðið og hafa ítrekað beðið um bættar aðstæður, að sögn Dóru. „75% af öllum alvarlegum slysum eða banaslysum í umferðinni í Reykjavík verða á óvörðum gangandi og hjólandi vegfarendum,“ sagði Dóra og nefndi að ef vilji væri fyrir að takmarka slys á þeim hópi væri fjárfesting á úrbótum meginviðfangsefni. Þá væri það sömuleiðis markmið borgarstjórnarinnar að fjölga í þeim hópi, þ.e. að efla vistvænan ferðamáta. Frétt af mbl.is Borgin valdi að auka umferðartafir Dóra Björt Guðjónsdóttir. Gangandi og hjólandi algjör afgangsstærð Þá sagði Dóra, þvert á orð Björns, að banaslys hefðu orðið á svæðinu á liðnum árum á óvörðum vegfarendum og því væri málið háalvarlegt. „Höfðabakki er einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og þú upplifir þig sem algjöra afgangsstærð þegar þú gengur um á þessu svæði,“ sagði Dóra og bætti við að verið væri að stíga skref til að gera aðstæður bærilegri og öruggari. Dóra sagði að búið væri að endurnýja umferðarljósabúnað á öllum gatnamótum á svæðinu nema við Bíldshöfða, það hafi frestast vegna frosts í jörðu. Framkvæmdum á svæðinu væri því ekki lokið og þess vegna gæfi núverandi ástand, hvort sem það er gott eður slæmt, ekki skýra mynd af því sem koma skal. Framkæmdir enn yfirstandandi „Þegar framkvæmdum lýkur eiga þessi gatnamót að vera skilvirkari, með meiri afkastagetu í heildina og umferðarflæðið betra,“ sagði borgarfulltrúinn og bætti því við að þegar verkefninu lyki yrði forgangur fyrir neyðarakstur forgangsaðila til staðar sem og fyrir strætisvagna. „Það verður hægt að fylgjast betur með umferðarmagni og þeim gögnum sem skynjarar safna og ef á þarf að halda verður umferðarstýringin endurskoðuð byggt á þeim upplýsingum og það hefur nú þegar verið gert.“ Hún sagði ástandið í núverandi mynd ekki gefa skýra mynd þar sem framkvæmdir væru enn yfirstandandi og nefndi aukinheldur að breytingar borgarinnar byggðu sannarlega á gögnum og mati sérfræðinga sem og reynslu alls staðar að. „Það er sjálfsagt að draga betur saman upplýsingar um málið og fara betur yfir það í umhverfis- og skipulagsráði og ætla ég því að gera það að minni málsmeðferðartillögu að vísa þessari tillögu í það góða ráð.“ Vörðu titla sína í Kópavogi „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Fær lygilegar upphæðir Dósaþjófar gómaðir á Húsavík Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Besti árangur Íslendings í 20 ár Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Brynjar hæfastur en er með hugann við annað 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Vörðu titla sína í Kópavogi „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Fær lygilegar upphæðir Dósaþjófar gómaðir á Húsavík Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Fólk farið að meðtaka veruleikann Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Vonast til að geta fundið Lúðvík Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Brynjar hæfastur en er með hugann við annað 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article