- What: Nine people were arrested in France in connection with the death of a far-right activist.
- Impact: The arrests follow the death of Quentin Deranque, who died after being attacked during a far-right protest.
Níu manns voru handteknir í Frakklandi í dag grunaðir um manndráp öfga-hægrimanns í síðustu viku. Sjö hinna handteknu eru karlmenn og tvær konur. Quentin Deranque, 23 ára, lést eftir að verða fyrir heilaskaða er minnst sex manns réðust á hann í síðustu viku. Árásin var gerð meðan á mótmælafundi öfga-hægrimanna stóð gegn vinstrisinnaða stjórnmálamanninum Rima Hassan sem þá hélt tölu við háskóla í Lyon. Hassan er franskur ríkisborgari og þingmaður á Evrópuþinginu. Thierry Dran, saksóknari í Lyon, greindi frá handtökunum í dag. Sex af hinum handteknu eru grunaðir um að hafa tekið þátt í barsmíðunum á Deranque og þrír um að hafa aðstoðað þá, hefur AFP fréttaveitan eftir heimildarmanni sem krefst nafnleyndar. Þá segir hann einn þeirra handteknu hafa verið aðstoðarmann þingmanns harðlínuvinstriflokks, Raphaels Arnaults. Hann er þingmaður La France Insoumise en heiti stjórnmálaflokksins má þýða sem „Frakkland óbugað“.