- What: Three people have been charged in connection with the death of a far-right activist in Lyon, France.
- Impact: The death occurred during a protest where the victim was attacked by a group of people.
Þrír hafa verið ákærðir fyrir dráp Quentins Deranques í síðustu viku. Deranque er lýst sem hægri-öfgamanni en ráðist var á hann á mótmælafundi í Lyon í Frakklandi í síðustu viku. Hópur öfga-hægrimanna stóð að mótmælum er Rima Hassan, þingmaður Evrópuþingsins, hélt ræðu við háskóla í Lyon 12. febrúar. Hið minnsta sex manns réðust á Deranque með þeim afleiðingum að hann varð fyrir heilaskaða og lét lífið. Alls hafa ellefu manns verið handteknir fyrir aðild sína í árásinni. Allir tengjast þeir vinstrihreyfingum. Tveir hafa þegar verið ákærðir fyrir að bana Deranque en einn er ákærður til viðbótar. Það er Jacques-Elie Favrot, aðstoðarmaður þingmannsins Raphael Arnault, sem er ákærður fyrir aðild að drápinu. Arnault er þingmaður harðlínuvinstriflokksins Frakkland óbugað (f. La France Insoumise ). Saksóknarinn Thierry Dran hefur sagt blaðamönnum að hann hafi farið fram á að sjö verði ákærðir fyrir að myrða Deranque. Dómari á eftir að taka afstöðu til þess hvort fjórir af hinum handteknu verði ákærðir. Frakklandsforseti ósáttur með ummæli ítalska forsætisráðherrans Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir hreyfingar sem tileinka sér ofbeldi ekki eiga neinn stað í landinu og hvetur stjórnmálahreyfingar til að „hreinsa til hjá sér“. Ekkert réttlæti ofbeldi, sama hvernig á það sé litið. Þá hefur Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, tjáð sig um árásina. Meloni sagði í gær árásina mikið áfall og sár fyrir alla Evrópu. Hún skrifar á samfélagsmiðlinum X að öfga-vinstrisinnaður hópur, sem hafi verið undir áhrifum frá hugmyndafræðilegu hatri, hafi ráðist á Deranque. Macron virðist óánægður með ummæli Meloni. Forsetinn sagði fólk verða að „halda sig við sitt“ og er talinn hafa vísað til ummæla ítalska forsætisráðherrans. Meloni segir orð sín hafa misskilist. „Að lýsa yfir stuðningi við frönsku þjóðina í máli sem varðar mjög greinilega alla er ekki truflun,“ sagði Giorgia Meloni í sjónvarpsviðtali.