Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Árni á landleið og enginn meiri loðnukvóti

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 18.2.2026 | 9:45 Árni á landleið og enginn meiri loðnukvóti Rannsóknarskipið Árni Friðriksson kemur fyrr til baka úr loðnuleit en áætlað var. Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, segir að litla sem enga loðnu hafi verið að finna. Morgunblaðið/Eggert/Hafrannsóknastofnun Rannsóknarskip Hafrannsóknarstofnunar, Árni Friðriksson, kemur fyrr til baka úr loðnuleiðangri sínum úti fyrir Norðvesturlandi en áætlað var. Ástæðan er að litla sem enga loðnu er að finna og útséð er með að nokkru verði bætt við loðnukvótann. „Meginmarkmiðið var að kanna hrygningargöngu loðnunnar þarna fyrir vestan og magnið á þessu svæði, norðvestanlands,“ segir Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun. Árni Friðriksson var alfarið í loðnuleit og þá var Þórunn Þórðardóttir einnig með bergmálsmælingar meðfram öðrum verkefnum. Engu bætt við kvótann „Til að gera langa sögu stutta þá er raunar bara rosalega lítið að sjá. Það hefur verið mjög lítið að sjá af loðnu fyrir Norðurlandi, nánast ekki neitt,“ segir Guðmundur. „Það sást til loðnu út af Vestfjarðamiðum, lítils háttar af hrygningarloðnu en aðallega ókynþroska loðnu. Niðurstaðan er raunar sú að við ályktum sem svo að þessi loðna sem við mældum þarna norðvestur af landinu í janúar, sem var allt að 311 þúsund tonn, hún hafi einfaldlega gengið austur með Norðurlandinu og austur fyrir land og farið þessa hefðbundnu hrygningargöngu réttsælis í kringum landið. “ Árni Friðriksson er á landleið eftir síðasta loðnuleiðangur vetrarins. Kort/Hafrannsóknastofnun Undanfarið hefur því verið velt upp hvort ástæða sé til að auka við kvótann og hvort leitin myndi leiða í ljós meiri loðnu. Guðmundur hefur áður sagt það ólíklegt og hann segir ekkert hafa breytt því mati. Kvótinn mun standa í stað. „Við ráðgerum ekki frekari mælingar á loðnustofninum þennan veturinn, “ bætir Guðmundur við. Aðspurður hvort Árni sé að koma fyrr úr leitinni en áætlað var segir Guðmundur svo vera. „Við höfðum nokkra daga í viðbót fyrir hann miðað við plönin en það var engin ástæða til að halda áfram. “ Uppsjávarskipin veiða þétt við suðurströndina þessa dagana og eru flest stödd norðvestur af Vestmannaeyjum, íslensk skip, færeysk og grænlensk. Hrognafylling loðnunnar er komin á það stig að nú er verið að frysta hana fyrir Asíumarkað, einkum Japan og því er hún orðin verðmætari en í byrjun vertíðar. Verðmætust verður hún þegar hægt verður að vinna úr henni hrognin og eru enn þá einhverjir dagar í það. Frétt af mbl.is „Góða loðnuvertíðin“ Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Menningarmunur á viðhorfi til rannsakenda Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Fín ýsuveiði og loðna allt um kring Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Gámar af fiski strand í Evrópu Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Fín ýsuveiði og loðna allt um kring Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Þröng á þingi á loðnumiðum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Gámar af fiski strand í Evrópu „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Vínverslun Hagkaups vel tekið Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Menningarmunur á viðhorfi til rannsakenda Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Fín ýsuveiði og loðna allt um kring Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Gámar af fiski strand í Evrópu Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Fín ýsuveiði og loðna allt um kring Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Þröng á þingi á loðnumiðum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Gámar af fiski strand í Evrópu „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert Íslendingarnir snúa heim í dag Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Vínverslun Hagkaups vel tekið Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »

Share this article