Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Loðnukvóti ekki aukin enn meira - engin stór vestanganga fannst

  • What: The Icelandic Marine and Freshwater Research Institute has decided not to increase the capelin quota beyond what was determined in January.
  • Impact: The total capelin quota will remain at 197,000 tons.
Read Full Article →

Hafrannsóknarstofnun telur ekki ástæðu til að auka loðnukvóta meira en gert var í janúar. Lítið sást af loðnu í febrúarmælingu Árna Friðrikssonar norðvestan við land og er skipið nú á landleið. Talið var mögulegt að svokölluð vestanganga myndi fara vestur fyrir land og vonir voru um að hún myndi mælast stór og gefa aukinn kvóta. Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafró, segir að svo virðist sem hrygningargöngur hafi allar farið austur fyrir land og stefni nú á Faxaflóa og Breiðafjörð. Smáar torfur, á leið vestur fyrir, hafi reynst ókynþroska loðna. Heildar loðnukvóti verður því 197 þúsund tonn sem gefin voru út í janúar. Það telst ágæt vertíð miðað við nær algjöran loðnubrest undanfarin tvö ár.

Share this article