Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Veiddu loðnu úr vestangöngu en hún stendur djúpt

Read Full Article →

Sigurður VE landaði í gær í Vestmannaeyjum smáræði af loðnu sem fékkst í Víkurál sem staðfestir að hluti þeirra 300.000 tonna af loðnu sem Hafrannsóknastofnun mældi út af Húnaflóa í janúar er gengin vestur með landinu í suðurátt. Guðmundur Óskarssson, sviðstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, segir rannsóknaskipið Árna Friðriksson hafa gert lykkju á leið sína til heimahafnar og mælt um 100.000 tonn af loðnu á svæðinu við Víkurálinn. „Við sáum töluvert magn þarna í Víkurálnum núna fyrir helgi. Við erum ekki komnir með lokaniðurstöðuna en það voru þarna ríflega 100.000 tonn. Við álítum sem svo að þetta sé loðna sem við höfum mælt áður út af Húnaflóa og hluti hennar hafi gengið vestur með landinu. Þetta leiðir því ekki til endurskoðunar á ráðgjöf okkar því þetta er hluti af þeim 300.000 tonnum af loðnu sem við mældum út af Húnaflóa í janúar,“ segir Guðmundur. Guðmundur J Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafró. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Jóhannes Danner, skipstjóri á Sigurði VE, segir að þetta hafi verið nokkurs konar könnunartúr. Fregnir hefðu borist frá Árna Friðriksson um loðnu þarna með minni hrognaþroska sem hefði þá hentað vel til áframhaldandi Japansfrystingar. Hann segir ekki loku fyrir það skotið að haldið verði á ný vestur með landinu. „Það var lítið að sjá fyrr en við komum í Víkurálinn. Og þar var líka talsvert að sjá en loðnan stóð djúpt og gaf lítið færi á sér. Við heyrðum líka af loðnu þarna víða í kring og mjög mikið var um hval á svæðinu sem gefur auðvitað til kynna að það sé loðna þarna. Þegar fram líða stundir býst ég við að það megi kalla þetta vestangöngu. Það var umtalsvert minni hrognaþroski í þessari loðnu, svona 15-17%. Ég á frekar von á því að þessi loðna komi í göngu inn í Breiðafjörðinn kannski í byrjun næsta mánaðar. Ég hef trú á því að vestangangan komi til með að hjálpa okkur að klára þetta, það er enn svolítið eftir,“ segir Jóhannes. Jóhannes Danner, skipstjóri á Sigurði VE. Hann segir að mikil áta hefði verið í þessum 80 tonnum sem þeir fengu í Víkurálnum, um 60 tonn og hún hefði ekki verið hæf til manneldisvinnslu. „Ég frétti líka af því að menn væru að kasta á einhverjar eftirhreytur við Hrollaugseyjar í morgun. Við stoppuðum við Reykjanesið í gær á heimleið og þar einhverjar lóðningar. En það var of mikill hrognaþroski í þeirri loðnu fyrir Japansfrystingu þannig að við veiddum ekkert þar. Við ákváðum þá að sigla í land og undirbúa okkur fyrir hrognavertíðina. Reiknað er með að Heimaey fari í hrogn annað kvöld og við kannski sólarhringi síðar. Þá verður stefnt inn í Faxaflóann og mér sýnist engin bræluspá vera í kortunum. En þá er komið að því verðmætasta sem eru hrognin. Það verður örugglega byrjað í hrognum um miðja vikuna og svo í iðnaðar- og Japanshrognum í restina.“

Share this article