200 mílur | Morgunblaðið | 14.2.2026 | 8:25 „Góða loðnuvertíðin“ Loðnugangan nú farin að nálgast Vestmannaeyjar mbl.is/Óskar Pétur Góður gangur er í loðnuveiðunum suður af landinu þessa dagana og er loðnugangan nú farin að nálgast Vestmannaeyjar og aðeins fárra stunda sigling á miðin. Þetta segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, í samtali við Morgunblaðið. „Veiðin hefur gengið mjög vel,“ segir hann, en afli uppsjávarskipa fyrirtækisins er farinn að nálgast 3.000 tonn. „Þetta lítur vel út og veðrið er frábært og fiskurinn góður. Það er allt gott við þetta núna. Þetta er góða loðnuvertíðin, hingað til,“ segir Sigurgeir Brynjar. Ekki er komið að hrognatöku enn og segir Sigurgeir Brynjar að hrognafyllingin sé orðin um 15%, sem henti á Japansmarkað, en þangað er seld heilfryst hrygna. Það sem af er vertíð hefur loðnuhrygna sem er með minni hrognafyllingu en 15% verið fryst fyrir markað í ýmsum Asíulöndum öðrum, en þangað fer líka eitthvað af frystum hæng. Sigurgeir Brynjar segir að hrognafylling loðnunnar þurfi að vera komin upp í 22-23% til að hún henti til hrognatöku og einnig þurfi hún að vera farin að renna sem kallað er, en þá eru hrognin laus í hrognapokanum og vatnskenndari og renna úr hrygnunni í vinnslunni. Mögulega verði farið að huga að hrognatöku eftir 10 daga. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt til loðnuleitar norðvestur af landinu sl. þriðjudag og er vonast til að eitthvað meira finnist af loðnu og að vart verði við vestangöngu. Það er þó allt of snemmt um það að segja, að sögn Guðmundar J. Óskarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar. Nánar má lesa um málið á bls.22 í Morgunblaðinu í dag Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Þarf að ræða bláfæðu á alþjóðavettvangi Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þröng á þingi á loðnumiðum Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Flotvarpan ekki stórt vandamál Gámar af fiski strand í Evrópu Höggin mörg fyrir vöruútflutning McDonald’s ærir netheima með kavíarpakka Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þarf að ræða bláfæðu á alþjóðavettvangi Þröng á þingi á loðnumiðum Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Flotvarpan ekki stórt vandamál Höggin mörg fyrir vöruútflutning Fyrsta loðnan á Þórshöfn McDonald’s ærir netheima með kavíarpakka Gámar af fiski strand í Evrópu Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Gámar af fiski strand í Evrópu Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Talsvert af loðnu á miðunum „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Pílustaður ekki íþróttamannvirki Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Þarf að ræða bláfæðu á alþjóðavettvangi Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þröng á þingi á loðnumiðum Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Flotvarpan ekki stórt vandamál Gámar af fiski strand í Evrópu Höggin mörg fyrir vöruútflutning McDonald’s ærir netheima með kavíarpakka Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þarf að ræða bláfæðu á alþjóðavettvangi Þröng á þingi á loðnumiðum Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Flotvarpan ekki stórt vandamál Höggin mörg fyrir vöruútflutning Fyrsta loðnan á Þórshöfn McDonald’s ærir netheima með kavíarpakka Gámar af fiski strand í Evrópu Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Gámar af fiski strand í Evrópu Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Talsvert af loðnu á miðunum „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert Hlutur þolenda verði réttur með bótum Hvernig mun framtíð Evrópu og Bandaríkjanna líta út? 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Framsókn kýs nýjan formann Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »