Samkvæmt tölum frá Fiskistofu sem uppfærðar eru í dag hafa veiðst tæp 123 þúsund tonn af loðnu á vertíðinni og standa því enn eftir rúm 74 þúsund tonn af útgefnum kvóta. Búast má við verulegum breytingum á þessum tölum eftir daginn því ein fjórtán uppsjávarskip eru nú við veiðar á loðnu vestan við sunnanvert Snæfellsnes. Fjöldi loðnuskipa er við veiðar vestan Snæfellsness. Mynd/GreenFish Engar loðnuveiðar voru síðustu helgi vegna brælu og síðasta skráða veiðin hjá Fiskistofu var síðastliðinn fimmtudag. Skip síldarvinnslunnar lönduðu engu að síður um helgina um 6.000 tonnum af hrognaloðnu. Þegar teknar eru saman landanir á þessari loðnuvertíð sem hófst fyrir alvöru í byrjun febrúar hefur mestu verið landað í Vestmannaeyjum, um 31 þúsund tonni. Þar á eftir kemur Neskaupstaðu rmeð um 20 þúsund tonn og athygli vekur að í þriðja sæti í löndunum á loðnu eru Færeyjar, alls 9.400 tonn. Þar á eftir kemur Eskifjörður með 8.500 tonn, Hornafjörður með 7.300 tonn, Vopnafjörður með 6.200 tonn, Akranes með 4.900 tonn og Fáskrúðsfjörður með 2.100 tonn.