Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Mikil loðnuveiði suður af Snæfellsnesi

Read Full Article →

Góð loðnuveiði er rétt sunnan Snæfellsness þar sem veitt er úr tveimur göngum, þ.e. vestangöngunni sem er skemmra á veg komin í hrognaþroska og úr göngum sem hafa komið austur og vestur með landinu. Á miðunum eru núna ein fjórtán loðnuskip og samkvæmt fregnum er vandi þeirra sá að fá ekki of mikið í nótina í hverju kasti. Á miðunum eru Síldarvinnsluskipin Beitir NK og Börkur NK, Eskjuskipin Jón Kjartansson SU og Aðalsteinn Jónsson SU, Heimaey VE, Sigurður VE og Suðurey VE frá Ísfélaginu, Gullberg VE frá Vinnslustöðinni sem og Huginn VE, Vilhelm Þorsteinsson EAfrá Samherja, Víkingur AK frá Brimi, Hoffell SU frá Loðnuvinnslunni og grænlensku togararnir Tasilaq og Polar Amaroq. Venus NK var að landa á Akranesi. Loðnumiðin og uppsjávarflotinn í morgunsárið. Mynd/GreenFish Veiðst höfðu tæp 132 þúsund tonn af loðnu við landið það sem af er vertíðinni samkvæmt tölum af gagnasíðu Fiskistofu sem uppfærðar voru snemma í morgun. Af þessum afla hefur um 18 þúsund tonnum verið landað í Færeyjum af færeyskum loðnubátum en einnig að hluta til af grænlenskum loðnubátum. Hafrannsóknastofnun gaf út 197.500 tonn kvóta í upphafi vertíðar og standa því eftir óveidd 65 þúsund tonn af heildarkvótanum en mjög gengur á kvóta íslenskra loðnuskipa því hlutur íslenskra útgerða er ekki nema 81% af heildarúthlutuninni. Þegar afdrif aflans eru skoðuð sést að 93.300 tonn hafa farið til vinnslu, þ.e. frystingar og hrognatöku. 40.300 tonn hafa farið til bræðslu. Mest af loðnu hefur borist á land í Vestmannaeyjum, 34.500 tonn og 25.000 tonn til Neskaupstaðar.

Share this article