„Getið þið ekki talað dönsku? Lærið þið hana ekki í skólanum?“ Að þessu spurði „danska konan“ Ditte Jensen ítrekað í samnefndum þáttum sem slógu í gegn á RÚV í byrjun árs. Kastljós ákvað að forvitnast um stöðu dönskukennslu hér á landi. Við heimsóttum einn ástríðufyllsta dönskukennara landsins, Kristínu Björnsdóttur Jensen, sem kennir við Menntaskólann á Akureyri. „Mér finnst yfir höfuð það að læra tungumál ekki vera tilgangslaust,“ segir hún. Kristín segir námsefnisgerð í dönsku vera af skornum skammti og að það sé eitt af því sem standi kennslunni fyrir þrifum. Kastljós ræddi við tvo nemendur, þær Örnu og Rebekku, sem sögðu ekkert allt of vel talað um dönskuna. „Mér finnst það samt aðeins vera að skána,“ bætir Rebekka við. Meira í spilaranum hér að ofan.