Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sérstaða dönskunnar tímaskekkja

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.2.2026 | 23:02 Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Frode Jakobsen segir dönskunám í grunnskólum nýtast fáum. Samsett mynd Fr óði Jakobsen, aðstoðarskólastjóri Fellaskóla í Breiðholti, sem starfað hefur innan íslenska skólakerfisins um árabil telur sérstöðu danska tungumálsins innan skólakerfisins tímaskekkju og til marks um furðulega forgangsröðun. Hann segir fáa íslenska nemendur ná valdi á dönsku áður en þeir ljúka skyldunámi í faginu og að námið sé ekki forsenda þess að geta lært Norðurlandamál síðar meir. Þá sé skrýtið að skylda nemendur sem hafa ekki enn náð góðum grunni í íslensku til að læra dönsku, sem reynist þeim gjarnan mjög erfitt og tekur tíma frá öðrum greinum. Skökk forgangsröðun „Þegar maður sér nemendahóp sem að þyrfti frekar að takast á við íslenskunám í þessum tímum sem eru að fara í viku á dönsku þá finnst manni forgangsröðin bara svolítið skökk,“ segir Fr óði . Hann bætir við að þar fyrir utan hafi danskan misst sess í íslensku samfélagi síðustu áratugi þar sem enska er orðið annað tungumál langflestra. „Ég held að það séu ekki margir grunnskólakrakkar í dag sem læra dönsku þannig að hún muni á einhvern hátt nýtast þeim í framtíðinni,“ segir Fr óði og bætir við: „Nú ólst ég ekki upp á Íslandi heldur Noregi og ég upplifi auðvitað þegar ég kem til Íslands að það er mun auðveldara fyrir mig að læra íslensku heldur en fyrir marga sem koma annars staðar að. Og þar af leiðandi held ég að Íslendingar, hvort sem þeir læra dönsku eða ekki, að þeir myndu aldrei eiga erfitt með að fara til Danmerkur, Svíþjóðar eða Noregs og pikka upp tungumálið.“ Danskan reynist mörgun nemendum með annað móðurmál en íslensku þung. Ljósmynd/Árni Torfason Íslenska danskan þokkaleg norska Þar fyrir utan segir hann danskan framburð erfiðan sem að valdi því að nemendur treysti sér síður til að reyna að bera fram orð og þar með læra að tala tungumálið. „Ef við tökum Noreg til samanburðar þá bera Íslendingar kannski dönskuna fram og það er bara þokkaleg norska sem maður heyrir.“ Hann tekur þó fram að hann sé alls ekki að tala fyrir því að norskunám verði tekið upp hér á landi heldur aðeins að önnur tungumál, á borð við norsku og sænsku, kynnu að reynast auðveldari fyrir íslenska nemendur til að ná tökum á. Danskan algjörlega framandi Nú starfar þú í Fellaskóla, þar sem margir nemendur eru með annað móðurmál en íslensku, reynist það þeim nemendum sem eru ekki með bakgrunn í norðurlandamálum ekkert erfitt að læra dönsku? „Jú,“ segir Fr óði afdráttarlaust og bendir á að nemendur sem hafi alist upp við íslensku hafi ekki bara góða undirstöðu í tungumálinu heldur hafi þeir gjarnan líka verið í kringum fólk sem slettir á dönsku og talar dönskuskotið mál. „Þessir krakkar sem eru þá hjá okkur í mjög miklum mæli hafa hvorki íslenskuna, þannig að þeir hafa ekki Norðurlandamál sem þeir tengja við skandinavísku, né þessar rætur í íslensku menningunni þar sem ýmislegt er dönskuskotið. Þessir nemendur tengja auðvitað ekki við þetta talandi til dæmis pólsku eða filippseysk tungumál. Þá er danskan auðvitað algjörlega framandi.“ 82 ár eru síðan Íslendingar lýstu yfir sjálfstæði á Þingvöllum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sjálfstæð þjóð í 82 ár Hann bendir á að þetta geti orðið að vandamáli seinna á námsgöngu þessara nemenda sem fara í framhaldsskóla þar sem þeir þurfa líka að taka skylduáfanga í dönsku sem þeir ná oft ekki. Brotthvarf nemenda með annað móðurmál en íslensku úr framhaldsskólum er hærra en í öðrum hópum og Fr óði telur að það að hætta að skylda þessa nemendur til í dönskuáfanga væri einn liður í að stemma stigum við þeim vanda. Að lokum ítrekar Fróði að hann sé alls ekki að tala tungumálanám niður heldur aðeins að setja út á að hún sé sett á sér stall samanborið við önnur tungumál. „Við sem þjóð erum búin að vera sjálfstæð síðan 1944 og það má vera að dönsku kennsluefni var skaffað af danska ríkinu á sínum tíma. Maður hefur heyrt ýmis rök í gegnum tíðina en mér finnst það tímaskekkja að danskan sé enn með einhverja sérstöðu í íslensku skólakerfi,“ segir Fróði að lokum. Sjö ferðamenn látnir eftir að rúta sökk í Baikalvatni Vill feta í fótspor föður síns Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Erlendir miðlar fjalla um Aron Pálmarsson 94 ára William Shatner gefur út þungarokksplötu Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Trump fór mikinn í Hvíta húsinu Húsleit lögreglu heldur áfram í Royal Lodge Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Hættir sem bæjarstjóri „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Sjö ferðamenn látnir eftir að rúta sökk í Baikalvatni Vill feta í fótspor föður síns Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Erlendir miðlar fjalla um Aron Pálmarsson 94 ára William Shatner gefur út þungarokksplötu Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Hættir sem bæjarstjóri „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article