Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fór heljarstökk með skófluna að berja á sinueldi sem ógnaði húsi

  • What: A house fire threatened a home in Álftártunga, Iceland.
  • Impact: Quick action by residents prevented the fire from reaching the house.
Read Full Article →

Sinueldur kviknaði við Álftártungu á Mýrum í morgun. Stór blettur er svartur eftir brunann milli eins hússins á bænum og árinnar. Litlu mátti muna að eldurinn næði húsinu. Svanhildur Svansdóttir býr í Álfstungu og varð heimafólk að bregðast fljótt við þegar eldurinn nálgaðist eitt heimahúsanna. „Við fengum hressilegt áfall og það tók á að hringja í 112. Maður hálfnötraði að horfa upp á þessar eldtungur sem voru langt upp í loftið og hafði áhyggjur af pabba sem var í húsinu við eldinn. Við fórum eiginlega bara á taugum. Ég held að maðurinn minn hafi tekið heljarstökk yfir með skóflu til að fara að berja á eldinum.“ Svanhildur og maður hennar börðust við eldinn í drjúgan tíma áður en slökkviliðið kom á staðinn. „Það var alveg hálftími. Ég keyrði yfir með slökkvitæki til að slökkva því eldurinn fór alveg upp að sökklinum á húsinu. Það er svo ofboðslegur vindur, 20 metrar á sekúndu að norðaustan, og maður vissi varla sitt rjúkandi ráð.“ Hún segir að eldurinn hafi verið svakalegur á tímabili telur að eldtungurnar hafi náð einn og hálfan metra upp í loftið.

Share this article