Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Frumvarp um almannatryggingar í nefnd fram í mars

Read Full Article →

Frumvarp félagsmálaráðherra um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu verður ekki ekki afgreitt úr velferðarnefnd fyrr en í mars. Varaformaður velferðarnefndar á ekki von á að miklar breytingar verði gerðar á frumvarpinu. Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sagðist á þingi í gær hafa fengið veður að því að til stæða afgreiða málið úr nefnd á fundi nefndarinnar í dag. Sagðist hún hafa fengið tölvupóst með drögum að nefndaráliti meirihluta. Málið var vissulega rætt á fundi nefndarinnar en ekki afgreitt úr nefnd til þriðju og síðustu umræðu. Það þýðir að málið verður ekki klárað fyrr en í byrjun mars hið fyrsta. Næsta vika er kjördæmavika á þingi og þar af leiðandi engir þing- eða nefndarfundir á dagskrá. Kristján Þórður Snæbjarnarson, varaformaður nefndarinnar, segist ekki eiga von á að veigamiklar breytingar verði á frumvarpinu, fyrst og fremst verði hnykkt á orðalagi. Frumvarpið er óvenjulegt að því leyti að Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin eru sameinuð í andstöðu sinni við frumvarpið. Seðlabankastjóri sagðist á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í gær ekki vera sérlega hrifinn af útfærslunni og þá hafa hagfræðingar goldið varhug við áhrifum frumvarpsins á ríkisfjármálin. Grindavíkurfrumvarp klárað með hraði Annað frumvarp sem verður hins vegar klárað fyrir kjördæmaviku er frumvarp dómsmálaráðherra um sveitarstjórnarkosningar í Grindavík. Full samstaða er um það mál og verður það að óbreyttu að lögum á morgun. Samkvæmt frumvarpinu fá þeir Grindvíkingar sem áttu lögheimili í bænum 9. nóvember 2023 og flutt hafa lögheimili sitt í annað sveitarfélag val um það í hvoru sveitarfélaginu þeir greiða atkvæði. Var talið mikilvægt að Grindvíkingar sjálfir séu í forystu um endurreisn bæjarfélagsins og að sú sveitarstjórn sem tekur við völdum í maí fái skýrt lýðræðislegt umboð til að leiða uppbygginguna sem er framundan.

Share this article